Laugardagur 27. apríl, 2024
6.8 C
Reykjavik

BÍ um takmörkun á aðgengi fjölmiðla að Grindavík: „Samræmist ekki tjáningarfrelsi fjölmiðla“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Blaðamannafélag Íslands ítrekar kvörtun sína vegna takmörkun á aðgengi fjölmiðla að hættusvæði Grindavíkur. 

Rétt í þessu sendi Blaðamannafélag Íslands frá sér fréttatilkynningu þess efnis að félagið hafi í gær sent lögreglustjóranum á Suðurnesjum ítrekun á kvörtun sína vegna takmörkunar á aðgengi fjölmiðla að hættusvæði í og umhverfis Grindavík.

Þar kemur fram að þann 22. nóvember síðastliðinn hafi BÍ óskað eftir því við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum að fyrirmæli embættisins til fjölmiðla um aðgang þeirra að hættusvæðinu í og umhverfis Grindavík yrðu framvegis sett fram með skriflegum hætti og birt opinberlega, svo allir félagsmenn félagsins gætu kynnt sér efni þeirra fyrirfram. Þá var einnig þess óskað að í slíkum fyrirmælum yrði, með nægilega skýrum hætti, tilgreint til hvaða svæðis þau tækju, hver gildistími þeirra væri og hvernig aðgangi fjölmiðla að svæðinu skyldu nánar tiltekið háttað þann tíma. „Óvissa hafi ríkt um ákvarðanirnar, sem samræmist ekki því tjáningarfrelsi fjölmiðla og almennings sem tryggt er í stjórnarskrá,“ segir í fréttatilkynningunni.

Í erindinu, sem sent var í gær, segir jafnframt:

„Um leið og ítrekuð er sú ósk sem fram kemur í erindi félagsins frá 22. nóvember 2023 er hér með óskað eftir því að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum láti félaginu í té eftirfarandi gögn og upplýsingar:
1. Afrit af þeim ákvörðunum sem embættið kann að hafa tekið um aðgang fjölmiðla að hættusvæðinu í og umhverfis Grindavík frá og með 11. nóvember 2023.
2. Upplýsingar um þau sjónarmið sem lágu umræddum ákvörðunum til grundvallar að því leyti sem þær koma ekki fram í ákvörðunum sjálfum, þ.m.t. upplýsingar um hvort við töku umræddra ákvarðana hafi verið tekið tillit til þess hlutverks sem fjölmiðlar gegna í lýðræðissamfélagi við miðlun upplýsinga til almennings m.a. um náttúruhamfarir og viðbrögð stjórnvalda við þeim.

Þess er óskað að umbeðnar upplýsingar og gögn berist undirrituðum lögmanni f.h. Blaðamannafélags Íslands eigi síðar en 7. febrúar nk. Tekið skal fram í því sambandi að forsenda þess að félagið geti gætt hagsmuna félagsmanna sinna og lagt mat á hvort ákvarðanir lögreglustjórans á Suðurnesjum gangi á rétt þeirra er sú að fyrir liggi með skýrum hætti hvert sé efni hlutaðeigandi ákvarðana og hvaða sjónarmið búi þeim að baki.“

- Auglýsing -

Þá kemur í lokin fram í fréttatilkynningunni að samtökin Blaðamenn án landamæra gagnrýni einnig takmarkanirnar en samtökin sendu frá sér yfirlýsingu þar sem takmörkunum blaðamanna að svæði er mótmælt og yfirvöld hvött til þess að takmarkanir séu í samræmi við tilefnið og séu gegnsæjar og að ákvörðun um þær séu teknar í samráði við fulltrúa blaðamanna.

Hér fyrir neðan má sjá færslu samtakanna á X-inu:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -