Föstudagur 19. apríl, 2024
1.8 C
Reykjavik

Birgitta Líf opnar sig um hnífaárásina í nótt: „Þökkum Guði að ekki fór verr“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Við hjá Banka­stræti um­berum ekki of­beldi af neinu tagi,“ segir Birgitta Líf Björns­dóttir, eig­andi skemmti­staðarins Banka­stræti Club, eftir skelfilega hnífaárás hettuklæddra árásarmanna á staðnum í nótt sem leið. Hún segir þá gesti sem stungnir voru hafa slasast alvarlega en séu þó ekki í lífshættu.

„Í kvöld mætti stór hópur manna í mið­bæ Reykja­víkur í leit að á­kveðnum aðilum sem þeir fundu inni á Banka­stræti og réðust á. Við­komandi slösuðust al­var­lega og voru fluttir á slysa­deild en eru ekki í lífs­hættu,“ segir Birgitta Líf á Insta­gram.

Sjá einnig: Hettuklæddir hnífamenn réðust inn á Bankastræti Club – Þrír slasaðir eftir hnífaárás

Hópur hnífamanna réðst inn á skemmtistaðinn Bankastræti Club í miðborginni rétt eftir miðnætti í nótt. Að minnsta kosti þrír eru særðir eftir hnífaárásina.

Mikill viðbúnaður lögreglu var við skemmtistaðinn í nótt  og þar á meðal fjöldi sérsveitarmanna. Vitni að árásinni segja að hnífamennirnir hafi hulið höfuð sitt og náð að flýja undan á bíl. Sérsveitarmenn fór inn á staðinn og slökkt á allir tónlist.

Birgitta er afar þakklát öllum þeim sen hjálpuðu í gærkvöldi. „Við hjá Banka­stræti um­berum ekki of­beldi af neinu tagi og leggjum mikið upp úr öryggi gesta okkar og þjálfun starfs­fólks,“ segir Birgitta Líf. „Þökkum guði að ekki fór verr. Of­beldi á hvergi heima,“ bætir hún svo við.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -