Laugardagur 27. apríl, 2024
9.2 C
Reykjavik

Biskupinn bítur frá sér: „Ég hef sinnt starfi mínu með köllun í hjarta og huga“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Agnes M. Sigurðardóttir biskup sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist ætla að áfrýja niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar, um að kikjuþing hafi brugðist skyldum sínum.

Biskupinn segist taka niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar um að hún hafi verið vanhæf til að gegna embætti sínu frá því að skipunartími hennar rann út þann 1. júlí 2022, alvarlega. Í yfirlýsingu sem Agnes sendi frá sér í gærkvöldi segist hún telja rétt að áfrýja niðurskurðinum „með hagsmuni þjóðkirkjunnar að leiðarljósi.“

Segist Agnes hafa í starfi sínu hafa beitt sér sérstaklega fyrir því að taka á ofbeldismálum innan kirkjunnar. „Ég er stolt að því en átta mig um leið á því að það geti verið umdeilt af hálfu þeirra einstaklinga sem um ræðir.“ Þá segir hún stuðning vígslubiskupanna í Skálholti og á Hólum hafa verið henni ómetanlegur og mikilvægur í krefjandi „þegar reynir á stjórnsýslulegan styrk í stöku málum.“ Bætti hún við: „Þá er ég afar þakklát þeim stuðningi sem prestar og djáknar sýndu mér og þjóðkirkjunni í sumar með  yfirlýsingum.“

Yfirlýsinguna má lesa í heild hér fyrir neðan:

Frá biskupi Íslands 

Á grundvelli köllunar minnar til að þjóna þjóðkirkjunni gaf ég kost á mér til embættis biskups Íslands  og var kosin af fólkinu í kirkjunni árið 2012 til þeirra starfa. Fimm árum síðar árið 2017 var umboð mitt framlengt á forsendum sömu kosningar. Þegar þjóðkirkjan fékk aukið sjálfstæði með lögum árið  2021 fylgdu skýr skilaboð frá ríkinu um að kirkjuþing þyrfti að setja reglur um það hvernig þessum málum væri háttað. Öllum skyldi tryggð sömu réttindi.  

- Auglýsing -

Nú hefur úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar komist að þeirri niðurstöðu að kirkjuþing hafi brugðist  þessari skyldu sinni. Ég tek það alvarlega. Mikilvægt er nú að fá niðurstöðu dómstóla um málið. Þess vegna tel ég rétt að áfrýja þessari niðurstöðu með hagsmuni þjóðkirkjunnar að leiðarljósi. 

Framundan á næsta ári eru biskupskosningar, eins og komið hefur fram í máli kjörstjórnar  þjóðkirkjunnar, þar sem fólkið í kirkjunni mun kjósa sér nýjan biskup til næstu ára. Ég hef hvatt forseta kirkjuþings til að tryggja og skýra stöðu biskups Íslands til frambúðar. 

Ég hef beitt mér sérstaklega fyrir því að taka á ofbeldismálum innan kirkjunnar til þess að kirkjan sé öruggur staður. Ég er stolt að því en átta mig um leið á því að það geti verið umdeilt af hálfu þeirra einstaklinga sem um ræðir.  

- Auglýsing -

Vígslubiskuparnir í Skálholti og á Hólum hafa verið mér samstíga alla mína biskupstíð og verið mér styðjandi kollegar í mörgum krefjandi málum. Það er stuðningur sem er bæði ómetanlegur og  mikilvægur þegar reynir á stjórnsýslulegan styrk í stöku málum. 

Þá er ég afar þakklát þeim stuðningi sem prestar og djáknar sýndu mér og þjóðkirkjunni í sumar með  yfirlýsingum. 

Ég hef sinnt starfi mínu sem biskup Íslands með köllun í hjarta og huga. Á þeirri vegferð hafa orðið grundvallandi breytingar á þjóðkirkjunni sem ég tel efla og móta kirkjuna til að takast á við bjarta framtíð kristni í landinu. Ég er stolt af kirkjunni minni, fólkinu sem hana myndar, þjónar og starfar um land allt. Það er hin eiginlega þjóðkirkja. 

Reykjavík, mánudaginn 16. október 2023 

Agnes M. Sigurðardóttir 

biskup Íslands

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -