Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Breti setti heimsmet á Leginum: „Ég er ekki enn komin með fulla tilfinningu í fingurna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hinn breski David Haze setti sitt áttunda heimsmet á róðrarbretti er hann réri eftir Leginum um miðjan október. Reyndi róðurinn mjög á eftir að vindurinn snerist á miðri leið.

Fram kemur í Austurfrétt að David hafi sett sér það markmið að eiga besta tímann á lengsta fljóti eða stöðuvatni heims fyrir róður á standandi róðrabretti (e. stand up paddle board). Snéri hann sér að Íslandi eftir að hafa sett sjö slík met á Bretlandseyjum, þar á meðal á Thames-ánni við Lundúnarborg.

Hafði David upphaflega ætlað að fara á Löginn 16. október en neyddist til að fresta för vegna veðurs. Ferðin var alls ekki án vandkvæða þrátt fyrir heiðan himinn og hægan vind, til að byrja með.

„Ég byrjaði ferðina við Lagarfljótsbrúna á Egilsstöðum og ætlaði að róa inn eftir því golan stóð að utan. Þegar ég var búinn með um tvo kílómetra varð mér litið á símann minn og sá að kærastan mín hafði ítrekað reynt að hringja. Ég hringdi til baka og hún sagði bílinn fastan í for á bílaplaninu. Ég sneri við til að hjálpa henni. Okkur gekk ekkert að ýta bílnum en eftir nokkur átök varð okkur ljóst að handbremsan var á. Þannig bættust fjórir kílómetrar við,“ segir David í nýjasta tölublaði Austurgluggans sem er blaðið sem Austurfrétt gefur út.

Lengd leiðarinnar sem David reri, inn að brúnni yfir ysta hluta Jökulsár í Fljótsdal innan við Hallormsstað, er 32 kílómetrar en hana fór hann á fimm og hálfur klukkutíma.

„Ég náði góðri ferð fyrsta klukkutímann og fór 6,5 km. Vatnið var stillt og umhverfið fallegt auk þess sem ég hafði smá vind í bakið. Á næstu klukkustund réri ég 7 km og á þeirri þriðju var ég á góðri leið með að ná 8 km þegar vindurinn snerist mér í mót. Þá varð þetta erfitt. Ég náði að setja undir mig hausinn og taka eitt róðrartak í einu.

- Auglýsing -

Þegar sólin hvarf á bakvið fjöllin varð mér verulega kalt og ég hlaut fyrsta stigs kalsár. Ég á ekki að tapa neinu varanlega en ég er ekki enn komin með fulla tilfinningu í fingurna.“

Fram kemur í Austurfrétt að David hafi þótt verst að hafa verið í kappi við tímann því þá gat ekki stoppað á leiðinni til að taka ljósmyndir. „Útsýnið af vatninu er stórfenglegt því þaðan fæst annað sjónarhorn á fjöllin en af landi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -