Föstudagur 17. maí, 2024
5.8 C
Reykjavik

Dómsmálaráðherra mun ekki hafa afskipti af máli Eddu: „Þessi ákvörðun byggir því á íslenskum lögum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í nýrri tilkynningu sem birtist fyrir stuttu á vef Stjórnarráðsins er greint frá því að dómsmálaherra muni ekki hafa afskipti máli Eddu Bjarkar Arnardóttur. Sumt fólk hefur kallað eftir því að dómsmálaráðherra stoppi framsal Eddu Bjarkar til Noregs og sagt að það sé verið að brjóta á réttindum hennar.

Hægt er að lesa tilkynninguna hér fyrir neðan.

„Mál sem varða fjölskyldur og börn eru oftast með viðkvæmustu og erfiðustu málum sem stjórnvöld þurfa að fást við. Eru því gerðar ríkar kröfur til þess í lögum að með slík mál fari til þess bær stjórnvöld, sem starfa eftir skýrum lögum og reglum og með það að leiðarljósi að gæta allra viðeigandi hagsmuna í hverju máli fyrir sig. Vegna þess máls sem verið hefur til umfjöllunar í fjölmiðlum er mikilvægt að árétta að þær ákvarðanir sem verið er að framfylgja hafa verið teknar af sjálfstæðum stjórnvöldum á grundvelli laga.

Norræn handtökuskipun byggir á lögum nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar, en þau lög byggja á samningi milli Norðurlandanna sem undirritaður var þann 15. desember 2005. Áður en samningurinn um norrænu handtökuskipunina tók gildi voru í gildi lög nr. 7/1962 um framsal sakamanna til Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Íslensk stjórnvöld hafa því síðan 1962 framselt íslenska ríkisborgara til Norðurlandanna.

Með tilkomu samningsins um norrænu handtökuskipunina urðu þær breytingar á fyrirkomulagi framsals milli Íslands og Norðurlandanna, að komið var á fót einfaldara og skilvirkara fyrirkomulagi um afhendingu sakamanna. Fyrirkomulagið byggist á gagnkvæmri viðurkenningu á ákvörðunum dómsmálayfirvalda viðkomandi ríkja. Þá varð sú breyting á að ríkissaksóknara var falin öll málsmeðferð þessara mála og ákvörðun um hvort orðið skuli við beiðni um afhendingu. Þá ákvörðun er svo alltaf hægt að bera undir íslenska dómstóla. Ríkissaksóknari hefur jafnframt heimild til að fara fram á úrskurð dómstóla um þvingunarráðstafanir, þ.m.t. gæsluvarðhald, til að framfylgja ákvörðunum um afhendingu á grundvelli fyrrnefndra laga. Slíkir úrskurðir hafa ekki áhrif á framkvæmd ákvörðunar um afhendingu.

Dómsmálaráðherra og ráðuneyti hafa enga aðkomu að meðferð þessara mála og hafa engar heimildir til að beita sér í þeim. Í því máli sem verið hefur til umfjöllunar í fjölmiðlum hefur ríkissaksóknari tekið ákvörðun um að afhenda skuli viðkomandi til Noregs á grundvelli fyrrnefndra laga nr. 51/2016 og hefur sú ákvörðun verið staðfest bæði af Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti. Þessi ákvörðun byggir því á íslenskum lögum og niðurstöðu íslenskra dómstóla. Ríkissaksóknari og dómstólar á Íslandi eru sjálfstæðir í störfum sínum og taka ekki við fyrirmælum frá öðrum stjórnvöldum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -