Gríðarlegur viðbúnaður var á Reykjanesbrautinn um miðjan dag og nokkuð ljóst að einn af þjóðarleiðtogunum sem mætir á leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Hörpu 16. og 17. maí.
Samkvæmt heimildum Mannlífs voru að minnsta kosti 10 lögregluþjónar á mótorhjóli sem fylgdu bifreið frá Keflavíkurflugvelli um miðjan dag í dag og var Reykjanesbrautinni lokað að hluta til á meðan bifreiðinni var ekið í átt til Reykjavíkur. Slíkur viðbúnaður er sjaldgæfur og má leiða að því líkum að um sé að ræða komu einhvers af þjóðarleiðtogum Evrópu sem ætli sér að mæta snemma á leiðtogafundinn.
Ekki hefur verið gefið upp hvort Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu ætli sér að mæta á fundinn en gríðarleg leynd ríkið ávalt um ferðalög hans. Ekki er líklegt að Zelensky sé sá sem fluttur var með lögreglufylgd eftir Reykjanesbrautinni þar sem hann sagði frá því á Twitter fyrir klukkustund að hann væri staddur í París þar sem hann ætlaði að hitta forseta Frakklands, Emmanuel Macron.
Ekki náðist í lögregluna við gerð fréttarinnar.