Víðir Reynisson er kominn í veikindaleyfi frá störfum sínum sem sviðstjóri Almannavarna. Í samtali við Vísir.is staðfestir samskiptastjóri Almannavarna, Hjördís Guðmundsdóttir fregnirnar.
Mikið hefur mætt á Víði enda hefur hann verið áberandi vegna starfa sinna, jafnt nú vegna náttúruhamfaranna sem dynja á Reykjanesskaga sem og í Covid faraldrinum. Óljóst er hversu lengi hann verður frá störfum. Þá hafa einnig langvarandi afleiðingar Covid-19 hrjáð Víði. „Þannig að það var tekin ákvörðun um að hann færi í hvíld,“ segir Hjördís í samtali við Vísi.
„Hann mun koma ferskur til baka.“
Þá kemur jafnframt fram að verkum Víðis verður skipt á milli Almannavarnateymisins.