- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir stúlku, 14 ára. Hún er 165 sm á hæð, með dökkt, sítt hár og brún augu. Hún er klædd í svarta 66° úlpu, gallabuxur og svarta skó.
Síðast er vitað um ferðir hennar við Hagkaup í Garðabæ kl. 23 í gærkvöld (19. maí).
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir hennar, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
Uppfært stúlkan er fundin heil á húfi.