- Auglýsing -
Jarðskjálfti að stærðinni 3,7 reið yfir á Reykjanesskaga skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Talið er að íbúar í Grindavík hafi orðið varir við skjálftann en upptök hans voru undir Þorbirni. Síðar um nóttina mældust tveir skjálftar yfir tveimur en skjálftahrina stendur nú yfir á Reykjanesskaga. Þá telja sérfræðingar hrinuna vera skýrt merki um kvikuhlaup og ekki þykir ólíklegt að það muni gjósa á svæðinu enn á ný.