Kona sem grunuð er um að hafa orðið manni að bana í Bátavogi hefur verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfu lögreglunnar um framlengingu gæsluvarðhaldsins til 17.desember næstkomandi. Þetta staðfesti Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Karlmaðurinn sem fannst látinn í íbúðinni í september var á sextugsaldri en konan var úrskurðuð í gæsluvarðhald þann 25.október. Rannsókn málsins miðar vel og búist er við að málið fari til ákærusviðs til yfirferðar á næstu dögum.