Föstudagur 19. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Lögreglumenn fengu fáar pásur: „Það langstærsta sem íslenska lögreglan hefur staðið frammi fyrir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Leiðtogafundi Evrópuráðsins í Hörpu er lokið en löggæslan í kringum hann var langstærsta verkefni sem íslenska lögreglan hefur komið að.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem hún þakkar almenningi fyrir þolinmæði og skilning varðandi þeim lokunum og takmörkunum sem grípa þurfti til. Þá er einnig minnst á pásuleysi lögreglumanna og birt skemmtileg ljósmynd af nokkrum þeirra hvíla sig eitt augnablik í strætóskýli. Eftirfarandi tilkynningu má lesa hér að neðan.

„Viðburðaríkir dagar vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu eru senn að baki. Um er að ræða risastórt verkefni, það langstærsta sem íslenska lögreglan hefur staðið frammi fyrir. Vel hefur tekist til og þakkar lögreglan öllum samstarfsaðilum fyrir ánægjulegt samstarf. Ekki síst þakkar hún almenningi fyrir þolinmæði og skilningi gagnvart þeim lokunum sem grípa þurfti til. Eins og við mátti búast urðu umferðartafir hér og þar síðdegis, en umferðin ætti að vera komin í samt lag þegar þetta birtist. Sama á við um miðborgina, en þar hefur verið hafist handa við að aflétta lokunum. Slíkt getur tekið einhverja klukkutíma og eru vegfarendur beðnir um að sýna því biðlund.

Eins og gefur að skilja hefur ekki verið mikið um pásur hjá lögreglumönnum þessa annasömu daga. Það á ekki síst við um lögreglumenn í umferðardeild, en hér hafa þrír þeirra þó náð að tylla sér eitt andartak, svona rétt áður en þeir þurftu að rjúka aftur af stað!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -