- Auglýsing -
Jón Árni Árnason er nýr aðalvarðstjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands. Jón Árni tók við starfinu af Björgólfi Ingasyni um mánaðarmótin síðustu. Jón starfaði á varðskipum Landhelgisgæslunnar frá árinu 1996 til 2012 þegar hann færði sig í stjórnstöð hennar.
Björgólfur færir sig til í starfi innan Gæslunnar og mun starfa innan siglingaöryggis- og sjómælingadeild hennar, en er tímabundið í sérverkefnum á aðgerðasviði.
Landhelgisgæsla Íslands greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlinu Facebook en hér að neðan má sjá færsluna í heild: