Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Allt að opnast eftir Covid: „Kæru læknar – AA fundir lækna endurvaktir“ – „Látið sjá ykkur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Covid stöðvaði AA fundi lækna eins og svo margt annað á Íslandi og í heiminum öllum. En nú er búið að opna fyrir AA fundi lækna og væntanlega allra annarra hópa sem sem vilja þiggja hjálp AA samtakanna með að eiga líf án áfengis eða annarra vímuefna.

Í tilkynningu um enduropnunina er kallað á lækna til að „mæta á fundi á nýjan leik sem verða  haldnir á fimmtudagskvöldum á milli klukkan 20 og 21.“

Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst.

Að sjálfsögðu eru „allir læknar velkomnir sem hafa löngun til að vera án áfengis eða annarra vímuefna,“ og því bætt við að „þetta eru sjálfshjálparfundir þar sem fólk deilir sinni reynslu, hlustar á aðra og nýtur góðrar samveru.“

Óskað er eftir því að enduropnunin á AA fundum lækna sé „látin berast og látið sjá ykkur.“

Án vafa hefur Covid sett strik í reikninginn hjá mörgum þeim sem glíma við fíkn í eiturlyfið áfengi og önnur vímuefni. En nú er hjálpin á nýjan leik til staðar fyrir hópa, hvort sem það eru læknar eða aðrar starfstéttir.

- Auglýsing -

Allar upplýsingar um fundi AA samtakanna má finna á heimasíðu samtakanna, aa.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -