Föstudagur 29. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Loftferðasamningur Íslands og Chile undirritaður í Osló

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Loftferðasamningur milli Íslands og Chile var undirritaður í gær í Osló. Samningurinn veitir afar víðtæk réttindi og tekur til áætlunarflugs milli ríkjanna án takmarkana á fjölda áfangastaða, flutningsmagni eða tíðni fluga.

Samningurinn veitir jafnframt rétt til flugs til viðkomustaða handan áfangastaða á Íslandi og Chile og til flugs með farþega og/eða frakt frá þriðja ríki til annars ríkis án viðkomu í heimaríki loftfars, svonefnd sjöundu réttindi. Heimilt hefur verið að beita samningnum frá áritun hans árið 2010.

Sendiherra Íslands, Ingibjörg Davíðsdóttir og sendiherra Chile, Luiz Plaza Gentia, undirrituðu samninginn í sendiráði Íslands í Osló.

Loftferðasamningar eru mikilvægir viðskiptasamningar sem tryggja flutninga til og frá Íslandi, auk þess að greiða aðgang íslenskra flugrekenda að alþjóðamörkuðum.

Yfirlit yfir loftferðasamninga og samkomulög Íslands við önnur ríki má finna í umfjöllun um loftferðasamninga á Stjórnarráðsvefnum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -