Þriðjudagur 23. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Segir starfsfólkið vera hetjur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur hvatt fólk til að sýna afgreiðslufólki í verslunum kurteisi. Ragnar greindi frá því fyrir skemmstu að stéttarfélaginu VR hafi borist töluvert af kvörtunum þess efnis að viðskiptavinir sýni afgreiðslufólki verslana dónaskap á tímum COVID-19.

„Við erum að sjálfsögðu áhyggjufull yfir ástandinu og óvissunni. Það skilar sér í þreytu og streitu og sjálfsagt getur verið stutt í pirring. En við megum ekki undir nokkrum kringumstæðum láta það bitna á framlínufólki í verslunum sem leggur heilsu sína undir í að sjá okkur fyrir nauðsynjavörum og annarri þjónustu sem við teljum sjálfsagða á tímum sem þessum,“ skrifaði Ragnar meðal annars.

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, segir langflesta sýna starfsfólki Bónus kurteisi. Hann segir að miðað við þann fjölda viðskiptavina sem fari í gegnum verslanir Bónus þá sé hlutfall þeirra sem sýna afgreiðslufólki dónaskap lágt. Hann segir að vissulega séu einstaka undantekningar.

Hann segir starfsfólk verslana eiga hrós skilið. „Starfsfólkið okkar í búðunum eru hetjur,“ segir Guðmundur í skriflegu svari við fyrirspurn Mannlífs.

Sjá einnig: Segir algengt að afgreiðslufólki sé sýndur dónaskapur: „Starfsfólk í verslun er í hópi þeirra sem halda samfélaginu gangandi“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -