Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Staðfest smit orðin 648 á Íslandi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Staðfest COVID-19 smit eru orðin 648 talsins hér á landi samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 60 á síðasta sólarhring.

Alls eru 8.205 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar.

357 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og. Ekkert sýni var rannsakað hjá Íslenskri erfðagreiningu vegna skorts á sýnatökupinnum. Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, sagði á blaðamannafundi í gær að skortur á pinnum væri „áhyggju­efni“.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Á fundinum verður beint sjónum að heilsugæslunni og mun Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóra lækninga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, fara yfir það sem er efst á baugi varðandi verkefnin, rafræn vottorð og fleira.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -