Fimmtudagur 28. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Þrír sinna eftirliti með lánveitingum og skila skýrslu til Bjarna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd veitingar viðbótarlána lánastofnana með ríkisábyrgð. Í nefndinni eru þau Einar Páll Tamimi, formaður, Kristrún Heimisdóttir og Ásta Dís Óladóttir.

Eftirlitsnefndinni er ætlað að hafa almennt eftirlit með framkvæmd lánveitinganna til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Þetta kemur fram á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Það segir að nefndin skuli skila fjármála- og efnahagsráðherra skýrslu um framkvæmdina á sex mánaða fresti, í fyrsta sinn fyrir 1. nóvember 2020. Jafnframt skal hún upplýsa ráðherra án tafar ef hún verður vör við brotalamir í framkvæmdinni.

Í skipunarbréfi kemur fram að sömu nefnd verði falið að hafa eftirlit með framkvæmd stuðningslána ef Alþingi samþykkir fyrirliggjandi tillögu þess efnis í frumvarpi til laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -