Laugardagur 27. apríl, 2024
6.8 C
Reykjavik

Fjármálaráðherra skoðar Skattinn: „Hvort óeðlilegir eða óheilbrigðir hvatar liggi að baki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í lok síðasta mánaðar birti Morgunblaðið upplýsingar um að starfsfólki Skattsins hafi verið veittar bónusgreiðslur fyrir vel unnin störf í þágu eftirlitsstofnunar. Fjármálaráðaherra hefur nú tekið greiðslurnar til skoðunar í ráðuneytinu, samkvæmt nýrri frétt á Rúv.is.

„Það sem mér finnst skipta máli í þessu er hin almenna lína um einhverja viðbót eða álagningu sem er í gegnum kjarasamninga gagnvart BHM. Ég er ekki að gera athugasemdir við slíka þætti. En það sem mér finnst ég þurfa að skilja til fulls og fá botn í er hvort einhverjir hvatar sem gætu talist óeðlilegir eða óheilbrigðir séu þarna til staðar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra í samtali við fréttamann Rúv.

Telja samanlagðar bónusgreiðslurnar 260 milljónir íslenskra króna og hafa þær verið veittar yfir fjögur ár. Deilt niður á árafjöldan gera það 65 milljónir á ári eða tæpar 5.5 milljónir á hverjum mánuði.

Varhugavert má teljast ef bónusgreiðslurnar séu tengdar við markmið starfsmanna um endurálagningu og sektir umfram venjubunda skattheimtu.

Í samtalinu segir Þórdís að Skatturinn taki fyrir að svo sé í pottinn búið. „… það eru einfaldlega þessar upplýsingar og samskipti sem eru í gangi,“ segir Þórdís Kolbrún. Að megin máli skipti að leiðbeinandi stofnanir, á borð við Skattinn, tryggi að lögum sé fylgt og að innbyrgðis hvati  leiðandi í þjónustu við fólk.

„Og það er bara það sem ég þarf að fá betri botn í,“ útskýrir Þórdís Kolbrún í lokin.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -