Þriðjudagur 23. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

100% Ull – sýning í Hönnunarsafni Íslands

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ull er klassískur, náttúrulegur efniviður með óendanlega möguleika. Á sýningunni getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönnuðir og handverksfólk er að fást við í dag.
Þátttakendur sýningarinnar koma frá ólíkum sviðum hönnunar og handverks en eiga það sameiginlegt að vinna af hugvitssemi með íslensku ullina í sínum afurðum.
Þátttakendurnir eru: Ásthildur Magnúsdóttir, vefari; Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður; verslunin Kormákur & Skjöldur; fyrirtækið Kula by Bryndís, sem sérhæfir sig í hljóðvistarlausnum; samstarfsverkefnið Ró, sem framleiðir meðal annars dýnur og ullarvinnslufyrirtækið Ístex. Sýningin stendur frá 19. september til 15. nóvember og fer fram í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg.

 

 

 

 

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -