Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Nýjungar frá Iittala – Fullkomið fyrir þá sem gleyma gjarnan að vökva plönturnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nappula-vörulínan frá Iittala sameinar eldri og nútímalegri form. Mjúkar línur og einföld form einkenna línuna þar sem kertastjakar hafa verið í aðalhlutverki. Nú hafa bæst við Nappula-blómapottar í tveimur stærðum.

Pottarnir eru úr leir, fáanlegir í þremur litum; hvítum, dökkgrænum og drapplitu.

Einföld hönnun sem undirstrikar fegurð plantnanna. Fallegir pottar sem geta vel staðið einir og sér eða með öðrum pottum. Pottarnir eru úr leir, fáanlegir í þremur litum; hvítum, dökkgrænum og drapplitu.

Iittala kynnir einnig nýja hagnýta vöru á markað; vökvunarflöskur. Þær eru gagnleg leið til þess að vökva plöntur þegar fólk er að heiman í lengri tíma. Flaskan er fyllt með hreinu vatni og henni ýtt varlega ofan í moldina í uppréttri stöðu.

Þessi græja gæti komið sér vel fyrir það fólk sem gleymir gjarnan að vökva plönturnar sínar.

Vatnshylkið sér til þess að plantan sé vökvuð með jöfnu millibili í u.þ.b. viku. Ein vökvunarflaska dugar fyrir litla heimilisplöntur meðan stærri plöntur gætu þurft tvær flöskur. Koma tvær í pakka, í tveimur mismunandi stærðum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -