Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Bachelorette stjarna látin – Dánarorsök ókunn: „Hæfileikaríkur og verndaði fólkið sitt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bachelorette stjarnan Clint Arlis er látinn aðeins 34 ára að aldri. Dánarorsök stjörnunnar liggur ekki fyrir að svo stöddu.

Clint vakti mikla athygli er hann tók þátt í Bachelorette seríu Kaitlyn Bristow’s en var hann þekktur fyrir kaldhæðinn húmor og beittar athugasemdir. Á meðan þáttaröðinni stóð eignaðist hann góðan vin, JJ, sem keppti einnig um hjarta Kaitlyn. Þróaðist samband þeirra félaga svo að það varð í raun eftirminnilegra en ástarsamband hans við Kaitlyn.

Clint og Kaitlyn

Eftir Bachelorette lá leið Clints í glímu sem hann bæði æfði og þjálfaði af kappi.
Fjölskylda og ástvinir lýsa honum sem einstökum og kærleiksríkum manni sem setti systkini sín og foreldra í fyrsta sæti.
„Hann var hæfileikaríkur og verndaði fólkið sitt,“ segir einn aðstandandi Clints að lokum í yfirlýsingu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -