Laugardagur 27. apríl, 2024
8.8 C
Reykjavik

„Hér er kynbundið ofbeldi og byrði kvenna í samfélaginu er langt frá því að vera sú sama og karla“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Hve­nær fá konur bara að vera í friði?“ spyr Stefanía Sigurðardóttir, sem er stjórnarkona í Kvenréttindafélagi Íslands, í pistli sínum – og bætir við:

„Að kona fái að ráða yfir sínum líkama er sumum framandi hugmynd. Enn eru til menn í þessum heimi sem telja það rétt sinn að stunda mök við konur án þeirra samþykkis. Það eru enn til menn sem telja það líka rétt sinn að ákveða hvort kona gangi með barn eða ekki. Það eru enn til menn sem vilja setja lög um líkama kvenna.“

Bætir því við að „það er ekki langt síðan að við þurftum að berjast hér á Íslandi fyrir þeim rétti að ráða yfir okkar eigin líkama. Löggjöf um þungunarof fór í gegnum Alþingi en þar voru meira að segja ráðherrar í ríkisstjórn, nokkrir formenn stjórnmálaflokka sem kusu gegn því að konur hafi rétt yfir sínum eigin líkama; þannig áður en við hugsum, þetta er ekki svona á Íslandi, munum þá bara að það er fólk, fólk í ábyrgðarstöðum sem vill ekki leyfa konum að hafa vald yfir líkömum sínum.“

Stefanía bendir á að „við höfum undanfarið heyrt fréttir af væntanlegri niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna að snúa við Roe v Wade sem er þekktur dómur fyrir það að hann staðfestir að frelsi kvenna að ráða því hvort þær fari í þungunarrof. Ríki Bandaríkjanna mega því ekki setja lög sem skerða þetta frelsi. Nú er líklegt að þetta breytist og hoppaði Oklahoma á vagninn og samþykkti hörðustu löggjöf í Bandaríkjunum þegar kemur að þungarrofi. Lögin verða þess eðlis að það er bannað að fara í þungunarrof eftir getnað, (það mætti kannski segja þessum körlum að enginn fer í þungunarrof fyrir getnað).“

- Auglýsing -

Einnig að „þungunarof er leyft ef konu er nauðgað eða ef um barnaníð sé að ræða en bara, athugið bara, ef það er kært til lögreglu. Kona eða barn sem sagt þarf ekki bara að taka ákvörðun um hvort hún fari í þungunarof heldur þarf hún líka að kæra líklega einhvern nákominn. Við verðum að muna að allir þeir sem vinna gegn konum eru ekki gamlir karlar með heygafla. Oklahoma er bara frekar venjulegt fylki í Bandaríkjunum, þar er meira að segja sérstakt safn sem fagnar kvenkyns frumkvöðlum. Hugmyndafræði safnsins er á þá leið að ef þau hefðu ekki átt þessar frumkvöðla konur sem hafa sett svip sinn á Bandaríkin í gegnum árin þá væru þau ekki Bandaríkin sem þau eru í dag.“

Heldur áfram:

- Auglýsing -

„Mikið vildi ég að þau myndu muna að hafa þessar konur í huga þegar þau banna konum að fara í þungunarrof þó þær vilji ekki ganga með barn.“

Stefanía færir í tal að „árið 2019 voru 18 þingmenn sem kusu gegn þungunarrofs lögunum 2019 á Alþingi Íslendinga. Við fögnum því ítrekað að vera í fyrsta sæti í jafnrétti í heiminum. En þýðir það að allt sé bara frábært hér? Nei svo sannarlega ekki. Á Íslandi er enn kynbundið ofbeldi, kynbundinn launamunur og byrði kvenna í samfélaginu er langt frá því að vera sú sama og karla. Við erum í fyrsta sæti því hin eru ekki góð í jafnrétti, við erum bara aðeins betri í því. Við erum fremst meðal jafningja ekki fremst meðal jafnréttissinna. Og höfum í huga að ef við pössum okkur ekki t.d. þegar við kjósum fulltrúa okkar í kosningum þá getum við hratt fallið niður úr fyrsta sæti.“

Stefanía endar pistil sinn á þessum orðum:

„Framtíð okkar gæti verið sá raunveruleiki sem blasir við konum í Oklahoma eða í Bandaríkjunum ef við vöndum okkur ekki við val á fulltrúum okkar. Það þurfti bara að kjósa einn hræðilegan forseta í Bandaríkjunum og staðan gjörbreyttist fyrir allar konur þar í landi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -