- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Megas blæs til heljarinnar tónleika í Hörpu í kvöld! Dægurflugur standa að tónleikunum en Megas tekur eigin útsetningar Árstíða og flutning blómans af blómabeði íslenskra kvenradda. Rjóminn af rjóma íslenskra tónlistarmanna leikur undir. Hljómsveit skipa Skúli Sverrisson, Daníel Friðrik Böðvarsson, Matthías Hemstock og Davíð Þór Jónsson og þeim stýrir Guðmundur Pétursson. Ágústa Eva Erlendsdóttir, Magga Stína, Ólöf Arnalds, Ragnheiður Gröndal syngja og að sjálfsögðu Megas.