Fimmtudagur 28. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

„Á erfiðum tímum reynist einnig gott að líta yfir farinn veg og þakka fyrir það sem er jákvætt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Aldrei fyrr hefur verið eins mikilvægt og nú að við stöndum saman og hlúum hvert að öðru. Hver og einn þarf að rækta líkama og sál. Nú skiptir öllu máli að efla lýðheilsu Íslendinga,” segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra í pistli sínum í Mannlíf.

Í dag þegar kórónuveirufaraldurinn hefur breytt öllu stendur þjóðin frammi fyrir mikilli áskorun, eins og Lilja rekur: „Allir hafa þurft að breyta hegðun sinni og venjum. Fullorðnir vinna heima, skólahald barna er með skertum hætti og sum börn læra í fjarkennslu. Dagarnir líða hægt, áhyggjurnar eru víða miklar og álagið eykst.“

Mikilvægt að efla líkamlega heilsu

Lilja segir viðmót Íslendinga í faraldrinum aðdáunarvert og umburðarlyndi og baráttuvilja vera allt umlykjandi. „Fólk fer í göngutúra eða út að hlaupa, en fylgir sóttvarnaleiðbeiningum vel. Líkamsræktartæki eru víða uppseld og fjarþjálfun hefur sjaldan verið jafnvinsæl. Þjóðin virðist einhuga um að hlúa vel að líkamlegri heilsu og efla hana enn frekar,“ segir Lilja og bendir á að þegar hefðbundið íþróttastarf hefur verið fellt niður, sé jafnframt afar mikilvægt að virkja börnin okkar í hreyfingu.

„Rannsóknir hér á landi hafa einmitt sýnt að íþróttir eru mikilvægar í uppeldi barna og ungmenna. Einnig hefur verið sýnt fram á sterkt samband á milli aukinnar hreyfingar og frammistöðu í námi.“

Verkefnið Tími til að lesa á vel við

- Auglýsing -

Lilja segir að áframhaldandi hvatning og vitundarvakning um heilsueflingu sé okkur öllum mikilvæg. „Við ættum að nýta öll slík tækifæri, ekki síst þegar þau sameina okkur og henta öllum aldurshópum,“ segir Lilja og bendir á að nýtt verkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis sé einmitt eitt slíkt tækifæri.

„Verkefnið „Tími til að lesa“ á vel við þessa dagana. Nú er nægur tími til að lesa góðar bækur, lesa með börnunum eða hlusta á hljóðbók. Með lestrinum ræktar þjóðin menningararf sinn, styður við skapandi stétt rithöfunda og skálda. Því meira sem við lesum því betra! Munum svo að skrá þetta allt niður á vefsíðunni www.timitiladlesa.is og setjum heimsmet í lestri!“

Sköpunargleði blómstrar sem aldrei fyrr

- Auglýsing -

„Snör viðbrögð listamanna hafa einnig gert mikið til að létta lund landans,“ segir Lilja og vísar til þeirra fjölmörgu listamanna sem hafa nýtt sér tæknina og fært menningu heim til landsmanna. „Leiksýningar eru komnar inn á stofugólf, tæknin gerir okkur kleift að kíkja rafrænt í söfn landsins og sköpunargleði Íslendinga blómstrar sem aldrei fyrr. Sinfóníuhljómsveit Íslands og Harpa sjá fyrir reglulegu tónleikastreymi og Helgi Björns skemmtir landanum á laugadagskvöldum. Allt þetta veitir kærkomið frí frá áhyggjum og amstri dagsins. Allt þetta helst því í hendur við að efla og bæta lýðheilsu landsmanna.“

Lilja er þakklát

„Á erfiðum tímum reynist einnig gott að líta yfir farinn veg og þakka fyrir það sem er jákvætt. Við erum heppin að búa í landi sem er ríkt af gæðum,“ segir Lilja. „Landi víðernis og náttúruauðlinda, hreinleika og heilbrigðis, fegurðar og gróðursældar. Nú sannast enn og aftur mikilvægi sjálfbærrar matvælaframleiðslu. Íslenskur landbúnaður er þar lykillinn að velgengni.“

Lilja nefnir að oft göngum við að íslenskum landbúnaði sem sjálfsögðum hlut, sem er ekki sjálfgefið. „Við göngum iðulega að honum sem sjálfsögðum hlut og njótum heilnæmra afurða hans. En það er ekki sjálfgefið að hafa aðgang að matvælum í hæsta gæðaflokki þar sem sýklalyf eru notuð í mun minni mæli en í samanburðarlöndunum. Án landbúnaðarins væri hér lítil sem engin matvælaframleiðsla. Án hans væri ekkert íslenskt kjöt, engin íslensk mjólk, ekkert íslenskt grænmeti. Hrein og næringarrík fæða sem okkur Íslendingum býðst stuðlar enn fremur að bættri lýðheilsu. Nú, þegar erfiðleikar steðja að, hvet ég ykkur til að hafa þetta ofarlega í huga. Sjálf er ég þakklát fyrir þetta góða samfélag sem við eigum saman.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -