Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Byggingu nýs áfangaheimilis Kvennaathvarfsins flýtt – 100 milljón króna fjárframlag

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Byggingu nýs áfangaheimilis Kvennaathvarfsins verður flýtt með 100 milljóna króna fjárframlagi á árinu 2020 samkvæmt tillögu til þingsályktunar um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Þingsályktunartillagan er til umfjöllunar á Alþingi í dag, segir á vef Stjórnarráðsins.

Verkefnið er liður í fjárfestingum ríkisins til að bregðast strax á þessu ári við efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum COVID-19 veirunnar. Um er að ræða átján nýjar leiguíbúðir sem skjólstæðingar Kvennaathvarfsins geta leigt til ákveðins tíma, samhliða því að fá stuðning innan athvarfsins. Safnað var fyrir verkefninu með þjóðarátakinu Á allra vörum árið 2017. Framlög ríkisins nú munu bæði flýta verkefninu og gera Kvennaathvarfinu kleift að bregðast við aukinni þjónustuþörf.

„Heimilið er því miður ekki griðastaður fyrir alla og mikilvægt er að huga að því á tímum þar sem við dveljum meira inni á heimilum okkar en áður. Bæði innlend og alþjóðleg mannréttindasamtök hvetja stjórnvöld til að bregðast við hættu á auknu heimilisofbeldi. Með því að flýta byggingu áfangaheimilis Kvennaathvarfsins er stigið mikilvægt skref til þess og athvarfið fær svigrúm til að veita fleirum þjónustu,” segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -