Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Gleðipinnar loka nokkrum stöðum tímabundið og breyta opnunartímum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nokkrir veitingastaða Gleðipinna loka tímabundið og opnunartímar breytast. Áherslan á heimsendingar með Hreyfli og Take away. Skapandi lausnir og samstaða

„Við höfum reynt eftir fremsta megni að vera til staðar fyrir okkar viðskiptavini í þessum aðstæðum og munum vera það áfram. Eftir að samkomubannið var þrengt í 20 manns ákváðum við að loka hluta staðanna okkar tímabundið frá og með morgundeginum. Áherslan verður á heimsendingar með Hreyfli og á Take away,“ segir Jóhannes Ásbjörnsson, talsmaður Gleðipinna.

Veitingastaðir Gleðipinna eru Saffran, Hamborgarafabrikkan, American Style, Aktu Taktu, Eldsmiðjan, Keiluhöllin, Blackbox, Shake&Pizza, Pítan, Roadhouse og Kaffivagninn.

„Þeir staðir sem loka frá og með þriðjudeginum 24. mars eru Roadhouse og Kaffivagninn. Við munum halda tveimur American Style stöðum opnum, einum Saffran stað og einum Eldsmiðjustað. Auk þess munu opnunartímar breytast að einhverju leyti. Í Keiluhöllinni og Shake&Pizza verður opið frá klukkan 17 – 21 næstu daga. Svo metum við einfaldlega stöðuna frá degi til dags.“

Aktu Taktu staðirnir fjórir verða áfram opnir og hefur Aktu Taktu við Skúlagötu verið opnaður allan sólarhringinn meðal annars til þess að geta veitt fólki sem starfar á næturvöktum betri þjónustu.

Áherslan á heimsendingar með Hreyfli og á Take away

- Auglýsing -

Gleðipinnar og Hreyfill ákváðu um síðustu helgi að snúa bökum saman og hefja heimsendingar frá stöðum Gleðipinna.

„Leigubílstjórar, líkt og aðrir í þjóðfélaginu, hafa verið áhyggjufullir yfir stöðunni. Þetta samstarf kom sér því afar vel fyrir okkur og fer kröftuglega af stað,“  segir Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils.

Fyrirkomulagið er upp á gamla mátann. Viðskiptavinir hringja á þann veitingastað sem þeir vilja panta hjá og símgreiða pöntunina. Heimsendingin er ókeypis ef keypt er fyrir 6.900 kr. eða meira, annars kostar hún 1.500 kr. Viðskiptavinir taka fram hvort þeir vilji snertilausa heimsendingu og þá skilur leigubílstjórinn matinn eftir við dyrnar.

- Auglýsing -

Skapandi lausnir og samstaða

Gleðipinnar hafa gripið til ýmissa aðgerða til að geta betur þjónað viðskiptavinum sínum í breyttum aðstæðum. Má þar nefna „Frítt að borða fyrir börnin“ en öll börn borða frítt á veitingastöðum Gleðipinna og gildir tilboðið einnig í Take away.

„Við höfum reynt að hugsa í skapandi lausnum og bregðast við ástandi sem breytist daglega. Það sem skiptir öllu núna er að standa saman og halda gleðinni,“ segir Jóhannes.

Vefsíða Gleðipinna þar sem má nálgast ýmsar upplýsingar.

Veitingastaðir Gleðipinna sem verða opnir frá þriðjudeginum 24. mars
Aktu Taktu Skúlagata: 561-0400 (opið allan sólarhringinn)
Aktu Taktu Mjódd: 557-9922
Aktu Taktu Garðarbær: 565-8050
Aktu Taktu Fellsmúla: 533-4100
Keiluhöllin: 511-5300
Shake&Pizza – 517-1819
Hamborgarafabrikkan Höfðatorgi og Kringlunni: 575-7575
American Style Skipholti og Dalshrauni: 517-1818
Eldsmiðjan Suðurlandsbraut: 562-3838
Blackbox Borgartúni og Mosó: 546-0321
Pítan Skipholti: 562-9090
Saffran Dalvegi: 578-7474

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -