Sunnudagur 19. maí, 2024
5.8 C
Reykjavik

Inga kallar ráðherra Íslands heigla: „Þetta er óþolandi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Inga Sæland, þingkona og formaður Flokks fólksins, segir heigulshátt stjórnvalda og fálmkenndar sóttvarnaraðgerðir hafa valdið þjóðina óafsakanlegum og óafturkræfum skaða. Hún segir hringlandahátt ráðherra landsins einfaldlega óþolandi.

Skoðun sína viðrar Inga í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hún:

„Það hefur ekki farið fram hjá neinum að enn á ný hefur veiran lekið inn í samfélag okkar gegnum landamærin. Enn er ekki vitað hve margir hafa sýkst í nýjustu „hópsýkingunni“. Vonandi náum við utan um smitin sem þegar eru greind án þess að fjórða bylgja faraldursins brjótist út. Ég mæli fyrir munn mjög margra þegar ég alhæfi og segi: Við erum búin að fá nóg,“ segir Inga ákveðin og heldur áfram:

„Hann er með hreinum ólíkindum þessi eilífi hringlandaháttur við að taka afgerandi og fyrirbyggjandi ákvarðanir hvað varðar landamærin sem allir vita að eru veikasti hlekkurinn í okkar sóttvörnum. Stigin hafa verið hænuskref í rétta átt en alls ekki nógu stór. Spyrja má í hvaða þágu landamærunum er haldið lekum í stað tryggum? Reynslan hefur kennt okkur hversu smitandi þessi veira er.“

Inga bendir á að hún sjálf hafi frá upphafi vilja beita hörðum varnaraðgerðum á landamærum Íslands til að geta haldið samfélaginu opnu innan þeirra. Forsendan til þess að að loka landamærunum. „Engan sérfræðing þarf til að sjá raunverulegan ábata fyrir allt samfélagið af því að við fáum að lifa frjáls innanlands. Atvinnuleysi hér er þannig að um 27.000 manns eru án vinnu. Verðbólgan mælist nú 4,3% með tilheyrandi skuldavexti heimilanna. Skuldir þeirra hafa vaxið um tugi milljarða króna á stuttum tíma, segir Inga og bætir við:

„Heigulsháttur stjórnvalda og fálmkenndar opnanir/ lokanir hafa kostað okkur óafsakanlegan, óafturkræfan skaða sem aldrei hefði þurft að verða af þeirri stærðargráðu sem raun ber vitni. Stjórnvöld sem sveiflast eins og pendúll, og vita ekki hvort þau eru að koma eða fara, eru vanhæf stjórnvöld. Við viljum ekki sjá fjórðu bylgju þessa andstyggðarfaraldurs. Það er ríkisstjórnarinnar að sjá til þess að vernda okkur gegn henni og það strax. Við viljum njóta þeirra forréttinda sem fylgja því að búa örugg á fallegu eyjunni okkar.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -