Grindvíkingar hafa hafið söfnun fyrir börn Lúðvíks Péturssonar, sem saknað hefur verið frá 10. janúar eftir að hann féll í sprungu í Grindavík.
Björn Birgisson samfélagsrýnir frá Grindavík gerði Facebook-færslu þar sem hann birtir texta frá söfnun sem Grindvíkingar standa fyrir, handa börnum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík þann 10. janúar en hann hefur ekki fundist síðan. Í færslunni segir að Grindvíkingar ætli að „sýna samhug í verki“ og safna fyrir börn Lúðvíks. „Margt smátt gerir eitt stórt,“ skrifar hann.
Færsluna má sjá hér fyrir neðan, en þar kemur fram upplýsingar um það hvar má leggja inn pening.
„Innilegar samúðarkveðjur til allra aðstandenda