Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Hæðist miskunarlaust að krónunni, Alþingi og Ásgeiri: „Krónan okkar getur flotið í kampavínsglasi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Ólafur Haukur Símonarson dregur íslensku krónuna, alþingismenn og Seðlabankastjórann sundur og saman í háði í færslu á Facebook. Um algjört rothögg er að ræða.

Leikritaskáldið og rithöfundurinn Ólafur Haukur Símonarson skrifaði magnaða færslu á Facebook í gær, sem vakið hefur verðskuldaða athugli. Í færslunni hæðist hann miskunarlaust að íslensku krónunni og um leið þeim sem halda uppi vörnum fyrir henni. Setningar eins og: „Krónan er tákn þess að við látum ekki einhverja evrópulassaróna hafa vit fyrir okkur,“ og „Það er nú einu sinni þannig að útlendingar skilja ekki íslenska hagstjórn,“ má sjá í færslunni, sem í raun er hálfgert uppistand, á kostnað krónunnar. „Þá getur okkar dáði Seðlabanki nefnilega brugðist við, reist í snatri sirkustjaldið á Arnarhóli, og óðar birtist glæsileg fylking töframanna, kraftakarla og trúða úr sölum Alþingis til að halda sýningu á göldrum líkustum hæfileikum íslensku krónunnar fyrir þjóðina sem fyllir tjaldið,“ skrifar Ólafur Haukur en við færsluna birti hann mynd af sirkustjaldi. Á öðrum stað í færslunni skrifar hann: „Hvílíkt lán fyrir þjóðina að eiga þetta töframeðal! hrópar sirkusstjórinn og klórar sér í eldrauðu skegginu. Hugsið ykkur leiðindin ef lánin ykkar stökkbreyttust aldrei! Hvað yrði um manndóm þjóðarinnar ef hún þyrfti bara að borga íbúðina sína einu sinni!“

Þessa mögnuðu færslu má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Meirihluti Íslendinga „elskar“ krónuna af því að hún er til vitnis um sjálfstæði þjóðarinnar og sjálfræði í peningamálum og hagstjórn. Krónan er tákn þess að við látum ekki einhverja evrópulassaróna hafa vit fyrir okkur. Það er nú einu sinni þannig að útlendingar skilja ekki íslenska hagstjórn. Verst fyrir þá. Þeir hafa einfaldlega ekki ímyndunarafl til að skilja þá möguleika sem krónan veitir til að víkja sér undan þegar allt fer í hass í heimsbúskapnum. Þá getur okkar dáði Seðlabanki nefnilega brugðist við, reist í snatri sirkustjaldið á Arnarhóli, og óðar birtist glæsileg fylking töframanna, kraftakarla og trúða úr sölum Alþingis til að halda sýningu á göldrum líkustum hæfileikum íslensku krónunnar fyrir þjóðina sem fyllir tjaldið.

Og það er ekki lítið sem krónan okkur kann; hún getur sprengt allar verðbólgumælingar eins og að drekka vatn; hún getur fellt bankakerfi eins og spilaborg; hún getur gert launahækkanir að engu á einu augnabliki; hún getur hækkað afborganir lána um helming með einu pennastriki; krónan okkar getur flotið í kampavínsglasi; en hún getur líka steinsokkið fyrirvaralaust.
Hvílíkt lán fyrir þjóðina að eiga þetta töframeðal! hrópar sirkusstjórinn og klórar sér í eldrauðu skegginu. Hugsið ykkur leiðindin ef lánin ykkar stökkbreyttust aldrei! Hvað yrði um manndóm þjóðarinnar ef hún þyrfti bara að borga íbúðina sína einu sinni!
Og þjóðin í sirkustjaldinu klappar fyrir ótrúlegri frammistöðu íslensku krónunnar.
Hún er öruggur vitnisburður um sjálfstæði okkar og heilbrigt sálarlíf! æpir hver upp í annan.
Húrra fyrir krónunni! Húrra!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -