Kristinn Hrafnsson segir ekkert þjóðlegra og íslenskara en það að bjarga mannslífi.
Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson, segir í nýrri Facebook-færslu sem hann skrifaði og hlekkjaði á frétt um nýjustu hetjur Íslands, konurnar þrjár sem björguðu lífi fjölskyldu með því að fljúga til Egyptalands og ná fjölskyldunni frá Gaza.
Í færslunni talar Kristinn um þann heiður sem fólgin sé í að bjarga mannslífi og nefnir þar Leif „Heppna“ Eiríksson, sem dæmi en hann segir hann hafa hlotið viðurnefnið „Heppni“ því hann hafi verið það heppinn að geta bjargað 15 skipsbrotsmönnum í lífshættu. Kristinn segir svo að lokum: „Björgum mannslífum. Fögnum þeirri heppni að vera í aðstöðu til þess. Þjóðlegra og íslenskara getur það ekki orðið.“