Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Lekamál lögreglunnar upplýst – Starfsmanninum vikið úr starfi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Búið er að finna þann starfsmann lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem lak myndskeiði sem sýndi hnífaárásina á Bankastræit Club. Hefur honum verið vikið frá starfi.

Sjá einnig: Sjáðu hnífaárásina á Bankastræti Club – MYNDBÖND – Myndbandsupptökur innan úr skemmtistaðnum

Fram kemur í frétt Rúv að Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari staðfesti að málið teljist upplýst. Voru nokkrir kallaðir til yfirheyrslu í tengslum við málið en ekki er talið að starfsmaðurinn hafi viljað að myndbandið birtist í fjölmiðlum.

Aðstoðarlögreglustjórinn Ásgeir Þór Ásgeirsson sagði í samtali við Rúv að embættið hafi afþakkað vinnuframlag starfsmannsins á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Muni frekari ákvarðanir verið teknar um næstku skref er öll gögn eru komin fram um málið.

Fjölmiðlar, þar með talið Mannlíf, birti myndbandið en það sýnir hóp grímuklæddra manna riðjast inn á Bankastræði Club og ráðast þar á þrjá menn. Í myndbandinu sem hafði verið í dreifingu á samfélagsmiðlum sést einnig að það virtist koma úr tölvu lögreglunnar. Hófst því rannsókn á lekanum og taldist það upplýst á föstudaginn og var manninum vikið frá störfum.

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -