Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

NÆRMYND: Albert Guðmundsson

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hver er Albert Guðmundsson?

Í gær var greint frá því að knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa og íslenska landsliðsins, hafi verið kærður fyrir kynferðisbrot. En hver er Albert Guðmundsson?

Albert Guðmundsson fæddist í Reykjavík 15. júní árið 1997 og er því 26 ára gamall. Foreldrar Alberts eru Guðmundur Benediktsson og Kristbjörg Ingadóttir og eru þau bæði fyrr. landsliðsmenn í knattspyrnu. Þá er afi Alberts, hann Ingi Björg Albertsson, einn besti sóknarmaður sem hefur spilað á Íslandi. Langaafi Alberts er svo Albert Guðmundsson en hann spilaði meðal annars fyrir stórliðin Arsenal og AC Milan og varð síðar fjármálaráðherra Íslands.

Snemma í yngri flokkum var ljóst að Albert væri hæfileikaríkur knattspyrnumaður en hann spilaði með KR þar til hann gekk til liðs við hollenska liðið Heerenveen aðeins 16 ára gamall. Árið 2015 gekk hann svo til liðs við hollenska stórliðið PSV. Albert varð fljótt einn af mikilvægustu leikmönnum varaliðs PSV en náði aldrei að festa sig í sessi í aðalliði PSV. Það var þá á þeim tíma sem Albert spilaði sinn fyrsta A-landsleik en hann hafði spilað tæplega 40 landsleiki með yngri landsliðum Íslands. Árið 2018 skipti Albert svo í hollenska liðið AZ Alkmaar þar sem hann blómstraði og var snöggur að komast í byrjunarliðið. 

En þó að Alberti hafi gengið vel með félagsliði sínu þá átti hann sína gagnrýnendur. Ronald de Boer, fyrrverandi landsliðsmaður Hollands, gagnrýndi hann harðlega eftir að Albert mætti í viðtal eftir leik með demants eyrnalokka. „Ég veit ekki hvort þið tókuð eftir því en hann var búinn að setja á sig tvo demants eyrnalokka. Hann fór inn í búningsklefa til að setja á sig eyrnalokka án þess að fara í sturtu,“ sagði De Boer sem var einnig ósáttur að Albert, sem hann hafði þá búið í Hollandi i tæpan áratug, hafi talað ensku í viðtalinu. „Hann talar ekki hollensku eftir sjö ár. Það segir sitt um hugarfarið í þessum strák. Ég hef það á tilfinningunni að hann sé upptekinn af öðrum hlutum. Ég fór sjálfur í viðtal á spænsku eftir fjóra mánuði hjá Barcelona.“ 

Góður árangur Alberts með AZ og sýnilegir hæfileikar hans hafa þó ekki náð að skila sér í íslenska landsliðið en flestir eru á því að Albert hafi aldrei náð að skína með því á sama hátt og hann hefur gert með félagsliðum. Albert komst svo heldur betur í fréttirnar í fyrra þegar hann var ekki valinn í landsliðið af Arnari Þór Viðarssyni, þáverandi landsliðsþjálfara, og sagði þjálfarinn á blaðamannafundi í september „Ég var mjög óánægður og svekktur með hugarfar Alberts.” Albert var aldrei valinn aftur í landsliðið meðan Arnar var landsliðsþjálfari en Albert hefur spilað 35 landsleiki fyrir Ísland.

- Auglýsing -

Í janúar 2022 var Albert svo keyptur til ítalska liðsins Genoa þar sem hann spilar ennþá í dag og hefur staðið sig það vel þar að hann vakti athygli stórliðsins AC Milan, sem íhugaði að kaupa hann í sumar. Genoa er sagt standa þétt við bakið á Alberti og rannsókn málsins muni ekki hafa áhrif á spilatíma hans með liðinu. Reglur KSÍ eru hins vegar skýrar og mun Albert ekki vera valinn í landsliðið meðan rannsókn málsins stendur yfir.

Albert er í sambandi með Guðlaugu Jóhannsdóttur og eiga þau saman tvö börn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -