Fimmtudagur 25. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Segir Halldór Benjamín leika landsföður sem „elski þjóðina og Vilhjálm svo heitt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gunnar Smári fer mikinn í nýrri færslu á Facebook en þar agnúast hann út í Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

Sósíalistaforinginn skeleggi tjáir sig um viðtal Kastljóss við Halldór Benjamín í gærkvöldi þar sem hann ræddi um deilu SA við Eflingu og fyrirhugað verkbann. Um þá útskýringu Halldórs um að hann væri bundinn trúnaði gagnvart þeim sem hann samdi við fyrir jól og gæti þess vegna ekki gefið neitt eftir gagnvart Eflingu, sagði Gunnar Smári að umorða þetta sem svo: „ Ég myndi gjarnan vilja hækka laun láglaunafólks í Eflingu en get það ekki vegna þessa að ég er bundinn af samkomulagi við forystumenn annarra félaga.“

„Í Kastljósi í gær hélt Halldór Benjamín Þorbergsson því enn einu sinni fram að SA gæti ekki gengið að kröfum Eflingar vegna þess að hann væri bundinn trúnaði við þá sem hann hefði samið við fyrir jól, að hann gæti ekki horfst í augu við viðsemjendur sína síðan þá ef hann gæfi eitthvað eftir gagnvart Eflingu.

Merkinguna má umorða svona: Ég myndi gjarnan vilja hækka laun láglaunafólks í Eflingu en get það ekki vegna þessa að ég er bundinn af samkomulagi við forystumenn annarra félaga,“ skrifaði Gunnar í byrjun færslunnar.

Því næst snýr hann oðrum sínum að Vilhjálmi Birgissyni verkalýðsforingja á Akranesi. Segir Gunnar Smári að Vilhjálmur hafi ráðist á sig í athugasemdum fyrir tveimur dögum þegar sá fyrrnefndi benti á þennan málflutning Halldórs Benjamíns í Facebook-færslu.

„Þegar ég benti enn og aftur á þennan málflutning Halldórs Benjamín fyrir tveimur dögum, áður en hann endurtók þetta í Kastljósi, réðst Vilhjálmur Birgisson á mig hér á veggnum með gífuryrðum og skömmum. Í stað þess að tilkynna að Halldór Benjamín sé að ósekju að flytja ábyrgðinni á óbilgirni sinna samtaka yfir á Vilhjálm og fleiri forystumenn verkalýðshreyfingarinnar, þá kaus Vilhjálmur að ráðast að mér og saka mig um guð má vita hvað ekki. Það má vel vera að Vilhjálmi finnist þetta snjallt og að honum hafi liðið betur á eftir. Halldór Benjamín er líka kátur með þetta, heldur áfram óáreittur að bera það út að hann geti ekki mætt kröfum Eflingar vegna þess að hann lofaði Vilhjálmi Birgissyni að gera það ekki.“

- Auglýsing -

Í lok færslunnar benti færsluhöfundur á hlekk á viðtal Kastljóss og segir Halldór vera í „upphöfnu hlutverki landsföðurs“ sem vilji setja á verkbann því hann „elski þjóðina og Vilhjálm svo heitt.“

„Hér má horfa á Halldór Benjamín halda þessu fram í Kastljósi gærkvöldsins, bera fyrir sig trúnað gagnvart forystu verkalýðshreyfingarinnar og þjóðinni allri, í þessu upphafna hlutverki landsföðurs sem hann hefur verið að leika síðustu mánuði. Halldór Benjamín segist enga aðra kosti hafa, svo hann bregðist ekki trúnaði við Vilhjálm og þjóðina, en að reka 21 þúsund láglaunamanneskjur heim og lama samfélagið. Hann gerir þetta ekki illum hvötum heldur vegna þess að hann
Þetta er okkur boðið upp á dag eftir dag, kvölds og morgna, í öllum miðlum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -