Svo virðist sem yfirdráttarlán heimila séu farin að aukast að nýju en þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabanka Íslands. Þegar Covid-faraldurinn stóð sem hæst greiddu heimilin yfirdráttarlánin niður en virðist nú vera viðsnúningur í þeim málum.
Fréttablaðið fjallaði um málið í dag en í viðtali við Markaðinn sagði Vignir Þór Sverrisson, fjárfestingastjóri hjá Íslandsbanka, að þessi breyting væri ákveðin vísbending um stöðu heimilanna í landinu. Gæti þetta bent til þess að hluti heimila eigi í vandræðum með að ná endum saman en það muni þó koma betur í ljós þegar líða fer á veturinn. Þá má ætla að aukin verðbólga bitni misjafnlega á íslenskum heimilum og að staða þeirra sé mjög mismunandi.