Sunnudagur 28. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Sólveig Anna boðar verkfall í mars: „Þau láta ekki íslenska yfirstétt segja sér fyrir verkum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sólveig Anna Jónsdóttir boðar ótímabundið verkfall Eflingarfólks þann 18. mars.

Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, skrifaði Facebook-færslu í morgun þar sem hún skýtur á Samtök atvinnulífsins, sem hún segir að svari kröfum verkafólks með „útúrsnúningi og rugli.“

„Forystu SA finnst óviðeigandi að verka og láglaunafólk taki málin í sínar eigin vinnuhendur og berjist fyrir betri kjörum. Við í Eflingu erum ekki á þeirri skoðun. Okkur finnst óviðeigandi að samið sé um auknar hækkanir handa hálaunahópum Alþýðusambandsins á meðan að fulltrúum verkafólks er sýnd óvirðing við samningsborðið og kröfum þess fólks sem að heldur samfélaginu gangandi með vinnuafli sínu ekki svarað með neinu nema útúrsnúningi og rugli.“ Þannig hefst færsla Sólveigar. Og svo boðar hún verkföll.

„Þessvegna hefjum við undibúning verkfalla. Við erum ekki eins og þeir sem láta sér nægja að hóta kannski aðgerðum einhverntímann eftir að aðgerðahópar hafi mögulega komist að einhverskonar niðurstöðu. Við látum verkin tala, nú líkt og ávallt.“

Þá segir Sólveig að stjórn og samninganefnd Eflingar standi þétt saman og að í gær hafi kjöstjórn félagsins komið saman og í dag verði verkfallsatkvæðagreiðslan auglýst. Kveðst hún þess fullviss að verkfallsboðunin verði samþykkt.

„Á mánudag fundar stjórn vinnudeilusjóðs Eflingar til að taka ákvörðun um upphæð verkfallsstyrks, og kl. 16 sama dag hefst atkvæðagreiðsla um verkföll hjá félagsfólki Eflingar sem að starfa við ræstingar. Ég er þess fullviss að verkfallsboðunin verður samþykkt og þá leggja 900 manneskjur, að stærstum meirihluta konur, niður störf á hádegi þann 18. mars, í ótímabundnu verkfalli. Þá fær íslensk yfirstétt tækifæri til að horfast í augu við það á hverra vinnuafli öll verðmætasköpun og þjónusta höfuðborgar landsins hvílir.“

- Auglýsing -

Í lokaorðum sínum segir Sólveig að forysta Eflingar sé hætt að samþykkja að „vinnuaflinu sé haldið niðri til að tryggja hagsmuni annarra hópa,“ og bætir við að þeim kafla hafi lokið árið 2018.

„Ég hef sagt þá áður og segi það á ný: Þeir dagar eru liðnir að forysta Eflingar, stærsta verkalýðsfélags verkafólk á Íslandi, samþykki að vinnuaflinu sé haldið niðri til að tryggja hagsmuni annarra hópa. Þeim kafla í sögu félagsins lauk árið 2018 og hann verður ekki opnaður á ný. Það er í raun óskiljanlegt að fólk skuli ekki vera tilbúið til að horfast í augu við þessa augljósu staðreynd. En þegar sú staða kemur upp bregst Efling hratt og örugglega við, í þeirri vissu að félagsfólk Eflingar, ómissandi fólk að öllu leyti, getur og vill berjast, sameinað, til að ná raunverulegum árangri.
Ég er stolt af félagsfólki Eflingar. Þau eru djörf og þau eru dugleg, og þau láta ekki íslenska yfirstétt segja sér fyrir verkum.
Áfram Efling, alla leið!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -