Búast má við að það dragi hratt úr hraunflæði eldgossins sem hófst á Reykjanessskaga seint í gærkvöldi. Hraun rennur ekki í átt að Grindavík og þykir gosið vera á heldur heppilegum stað að sögn jarðeðlisfræðings.
„Sú lýsing sem hefur komið fram, og hún bara stendur, er að þetta er verulegt gos. Það er fjögurra kílómetra löng sprunga sem nær svona frá Sundhnúk og vel norður fyrir Stóra-Skógfell,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, í samtali við Stöð tvö í nótt.
Stöðufundur vísindamanna og viðbragðsaðila var haldinn í húsakynnum Almannavarnna í Skógarhlíð í nótt en kvikurennslið var töluvert mikið saman borið við fyrri gos á svæðinu.
„En það er sjálfsagt byrjað að draga úr því nú þegar. Hraunið rennur meira til austurs en til vesturs, sem er heppilegt.“