Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Uppbygging lífsgæðakjarna í Reykjavík: „Stuðlar að meiri lífsgæðum fremur en hver í sínu horni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Afar ánægjulegt er að geta með samhentu átaki Sjómannadagsráðs, Reykjavíkurborgar og ríkisins, stuðlað að jafnvíðtækri uppbyggingu leiguíbúða fyrir aldraða. Framkvæmdin endurspeglar hvernig slíkt samstarf stuðlar að meiri lífsgæðum og hraðari uppbyggingu, fremur en að hver vinni í sínu horni,“ segir Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og Naustavarar.

Við Skógarveg rísa stvö ný fjölbýlishús með 87 íbúðum sem eru hluti af lífsgæðakjörnum Sjómannadagsráðs, Naustavarar og Hrafnistu. Leiguíbúðirnar eru fyrir 60 ára og eldri sem tengjast þjónustumiðstöðinni Sléttunni við Sléttuveg í Reykjavík.

Hugmyndafræði lífsgæðakjarnans er fædd hjá Sjómannadagsráði og hefur þar verið í þróun í áratugi. Hún gengur út á að reka samhliða hjúkrunarheimili, leiguíbúðir og þjónustumiðstöðvar þar sem eldra fólki eru búnar aðstæður til að hámarka lífsgæði sín.

Sérhannaðar með þarfir eldra fólks

Uppbygging lífsgæðakjarnans er samstarfsverkefni Sjómannadagsráðs, Reykjavíkurborgar og ríkisins. Framkvæmdir annast Þarfaþing hf. sem skilar íbúðunum fullbúnum til Naustavarar og er ætlað að því verði lokið seinni hluta ársins 2024. Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík voru viðstaddir þegar að Guðbjörn Guðjónsson gröfumaður hjá undirverktaka Þarfaþings tók fyrstu skóflustunguna vegna framkvæmdanna sl. föstudag að viðstöddum aðstandendum framkvæmdanna.

Sjómannadagsráð hefur þegar til útleigu í gegnum dótturfyrirtæki sitt, Naustavör, 60 íbúðir við Sléttuveg 27. Verða því alls 147 íbúðir fyrir þennan aldurshóp til útleigu í lífsgæðakjarnanum að framkvæmdum loknum. Gæði og búnaður íbúðanna verður sambærilegur og í núverandi íbúðum við Sléttuveg. Innangengt er úr öllum húsunum í þjónustumiðstöð á Sléttuvegi. Auk þess annast dótturfélagið Hrafnista rekstur hjúkrunarheimilis með 99 íbúðum auk þjónustumiðstöðvarinnar Sléttunnar sem er samstarfsverkefni með öðrum félagsmiðstöðvum eldri borgara í Reykjavík.

- Auglýsing -

Nýjar íbúðir Naustavarar verða í tveimur samtengdum húsum við Skógarveg 4 og 10. Íbúðirnar eru ýmist tveggja eða þriggja herbergja á bilinu 54 til 90 fermetrar, en þrjár íbúðir verða um 120 fermetrar að stærð. Í íbúðunum er allt aðgengi gott og þær sérhannaðar með þarfir eldra fólks í huga. Hurðaop og gangar eru breiðari en gengur og gerist, einnig eru baðherbergi og eldhús sérhönnuð svo auðvelt sé að nota ýmiss konar stuðningstæki. Reiknað er með að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar um mitt árið 2024.

Undir báðum húsum verður ein stór bílageymsla þar sem stæði verða leigð út sérstaklega. Einnig verða útistæði við húsin og þar verða föst stæði einnig leigð út til íbúa með sama fyrirkomulagi og í leiguíbúðunum sem eru við Sléttuveg.

Meðfylgjandi eru tölvugerðar myndir af nýju húsunum, auk mynda frá athöfn sl. föstudag þegar tekin var skóflustunga við upphaf framkvæmdanna.

- Auglýsing -

Um Naustavör og Sjómannadagsráð:

Naustavör er óhagnaðardrifið leigufélag sem var stofnað árið 2001 í þeim tilgangi að byggja og bjóða upp á sérútbúið húsnæði, með aðgengi að þjónustu og afþreyingu sem hentar sérstaklega vel fólki frá 60 ára aldri. Myndi félagið hagnað er honum varið í frekari uppbyggingu á aðstöðu og þjónustu en arður er ekki greiddur til eigenda. Naustavör er í eigu Sjómannadagsráðs og er eitt af helstu hlutverkum Sjómannadagsráðs að vera leiðandi í öldrunarþjónustu á landinu. Hjúkrunarheimili Hrafnistu eru einnig í eigu Sjómannadagsráðs og er gott samstarf á milli Naustavarar og Hrafnistu, enda eru allar leiguíbúðirnar í næsta nágrenni við Hrafnistuheimilin. Gott aðgengi er innanhúss á milli íbúðanna og hjúkrunarheimilanna.

Fyrsta skóflustungan af leiguíbúðum fyrir aldraða við Skólaveg.

Sjá einnig: www.naustavor.is og www.slettan.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -