Mánudagur 6. maí, 2024
2.8 C
Reykjavik

Vantrauststillaga dregin til baka: „Hún á ekki að vera ráðherra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Flokkur Fólksins hefur lýst yfir vantrausti á Svandís Svavarsdóttur.

Vantrausttillagan var nú fyrir stuttu birt á vef Alþingis en hún er lögð fram í kjölfar þess að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra greindi frá því að hún muni ekki segja af sér embætti. Stjórnarandstaðan hefur kallað eftir því eftir að Umboðsmaður Alþingis birti álit sitt á hvalveiðibanni sem Svandís setti í fyrra. Umboðsmaðurinn telur að Svandís hafi brotið lög þegar hún gerði það.

„Hún á ekki að vera ráðherra. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Svandís Svavars­dótt­ir ger­ist upp­vís að því að ganga af léttúð um gild­andi lög hér á landi,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í samtali við mbl.is í morgun.

66% lesenda Mannlífs sögðu í könnun sem var gerð í byrjun árs að Svandís ætti að segja af sér embætti.

UPPFÆRT:

Inga Sæland hefur gefið það út að Flokkur fólksins hafi dregið tillögu sína um vantraust til baka í ljósi þeirra frétta að Svandís Svavarsdóttir sé komin í veikindaleyfi vegna krabbameins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -