Fyrirtækið Kaldalón, sem er í eigu nokkurra fjárfesta, til að mynda Skel, fjárfestingarfélags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur eiginkonu hans, sem á lóð við Suðurfell 4, sem er gömul bensínstöðvarlóð í Breiðholti, þar sem nú er meðal annars apótek.
Þetta kemur fram á eirikurjonsson.is.
Nú skal að byggja; erindi verið sent til borgaryfirvalda, sem er eftirfarandi:
„Suðurfell 4 – (fsp) breyting á hverfisskipulagi – USK23050106.
Lögð fram fyrirspurn Fasteignastýringar ehf., dags. 8. maí 2023, ásamt bréfi Kaldalóns f.h. Fasteignastýringar ehf., dags. 8. maí 2023, um breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hverfi 6.3 Efra Breiðholt, vegna lóðarinnar nr. 4 við Suðurfell sem felst í uppbyggingu á lóð, samkvæmt tillögu Kaldalóns, dags. 5. maí 2023.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.”