- Auglýsing -
„Neytendur hafa talað. Okurbúllur eiga ekkert erindi inn á matvörumarkaðinn í dag eða aðra daga,“ segir Jóhann inn á grúbbunni Vertu á verði á Facebook.
En þar verkur hann athygli á því að Krambúðin í Firði í Hafnarfirði loki í dag. mbl.is greinir frá. Að sögn þeirra ber einingin sig ekki og leiga og rekstarkostnaður er of hár miðað við sölu. Ekki stendur til að loka fleiri verslunum að svo stöddu.
Krambúðin opnaði í Verslunamiðstöðinni Firði í Hafnarfirði í febrúar og hefur verið rekin þar í fimm ár. En nú er komið að leiðarlokum. Á landinu öllu eru reknar 21 Krambúð en eftir daginn í dag verða þær 20. Krambúðirnar eru þægindaverslanir, með langan opnunartíma, sem bjóða upp fljótlega og góða næringu í amstri dagsins.