Miðvikudagur 27. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

Mál bakvarðarins sent saksóknara

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rannsókn á máli bakvarðarins fræga, Önnu Auroru Waage Óskarsdóttir, er lokið hjá lögreglunni á Vestfjörðum og málið verður sent áfram til héraðssaksóknara þar sem tekin verður ákvörðun hvort gefin verði út ákæra. Það gefur ákveðnar vísbendingar um að málið sé sent saksóknara í stað þess að lögregla hafi hætt rannsókn án frekari eftirmála.

Rannsókn lögreglu snéri að meintu skjalafalsi er Anna Aurora tók að sér starf í bakvarðasveit Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í baráttunni við COVID-19, en þar hún var handtekin vegna kæru um fölsun skjala um menntun sína og starfsleyfi. Þá var lögreglan einnig að rannsaka meintan þjófnað bakvarðarins og meint brot Önnu Auroru á hegningarlögum í þá veru að hún hafi unnið starf sem opinbert leyfi þarf til. Rannsókninni er í öllum atriðum lokið og héraðssaksóknari ákveður framhaldið.

Lýsir áfram sakleysi

Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, staðfestir að síðustu yfirheyrslur hafi farið fram yfir Önnu Auroru fyrr í vikunni og að rannsókn sé lokið. Það verði nú sent héraðssaksóknara en bakvörðurinn lýsir áfram yfir sakleysi sínu. „Við erum að ganga frá málinu og munum senda það áfram. Málið telst upplýst og næsta skref að lesa það yfir með tilliti til þess hvort gefin verði út ákæra og það fari fyrir dóm,“ segir Karl Ingi.

Anna Aurora var handtekin að morgni föstudagsins 10. apríl, en eftir húsleit og yfirheyrslur þann sama dag var henni sleppt úr haldi. Hún var svo yfirheyrð aftur núna í byrjun vikunnar og neitar áfram sök líkt og hún gerði í viðtali við Mannlíf skömmu eftir handtökuna. Þar boðaði hún stefnur gegn bæði Gylfa Ólafssyni, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, og Karli Inga lögreglustjóra.

Rannsakað til botns

- Auglýsing -

Aðspurður svaraði lögreglustjórinn því játandi hvort málið myndi ekki ósjálfrátt falla niður hafi rannsóknin sýnt fram á að skjöl bakvarðarins væru ófölsuð. „Þá myndi málið falla niður jú. Almennt er það svo við rannsókn lögreglu að þegar við sjáum sem svo að eitthvað verði aldrei að máli og kæra eigi ekki við rök að styðjast þá hættum við rannsókn. Í þessu máli gerðum við það ekki heldur fullkláruðum rannsóknina og sendum frá okkur. Það var tilefni til þess. Það hlýtur því að vera eitthvað meira í þessu en almennt þegar kæru er vísað frá eða rannsókn hætt,“ segir Karl Ingi.

Allt uppi á borðum

Anna Aurora fullyrti að hún hafi ekkert að fela og að hún hafi frá upphafi sýnt fulla samvinnu. „Ég lýsi algjörlega yfir sakleysi mínu. Ég sagði allan tímann frá því að ég væri með erlent próf en ekki íslenskt, sem ætti eftir að meta. Það voru allir meðvitaðir um það enda tilkynnti ég það líka strax við komuna vestur. Það gerði ég um leið og ég mætti og það stóð á öllum plöggum. Það var allt uppi á borðum frá upphafi, ég var alls ekkert að reyna að falsa neitt,“ sagði Anna Aurora.

- Auglýsing -

Jón Bjarni Kristjánsson, lögmaður Önnu Auroru, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en hann hafði áður gefið út yfirlýsingu þar sem sakleysi bakvarðarins var lýst yfir. Við vinnslu fréttarinnar var leitað viðbragða Önnu Auroru en án árangurs.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -