Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Sakar forsetafrúna um að misnota aðstöðu sína

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðmundur Franklín Jónsson, forsetaframbjóðandi, fer þess á leit við íslenskan almenning að hann leggi pening í kosningabaráttu sína og sakar Elizu Reid um óheilindi með því að ýta framboði eiginmannsins áfram í gegnum starf sitt hjá Íslandsstofu.

Það væri rosalega gott ef einhverjir sæu sér aflögu fært að leggja til einhverjar krónur, það hjálpar, sagði Guðmundur Franklín Jónsson í beinni á Facebook-síðu rétt í þessu. Forsetaframbjóðandinn er á hringferð um landið að kynna framboð sitt og var skammt frá Akranesi þegar hann biðlaði til almennings um að leggja fé í kosningabaráttu sína. Peningana segist Guðmundur ætla að nota í gerð auglýsinga fyrir framboð sitt.

Guðmundur líkti kosningabaráttu þeirra Guðna Th. Jóhannessonar forseta við baráttuna á milli Davíðs og Golíats. Guðni er vel fjármagnaður, með fimm kosningamaskínur á bakvið sig, telst okkur. Hann segist ekki ætla að eyða peningum í framboð sitt sem er ekki alveg rétt. Það kostar að fara á milli staða, til dæmis.

Þá sakaði Guðmundur Elizu Reid forsetafrú um að misnota sér aðstöðu sína. Guðni leikur í auglýsingu hjá Íslandsstofu. Konan hans er að auglýsa landið hjá Íslandsstofu. Þessar auglýsingar er verið að birta í sjónvarpinu mjög oft þannig að hann er að fá fríar auglýsingar. Þetta eru þau að gera og þessu þurfum við að svara með því að gera auglýsingar, bendir hann á og bætir við að af þeim sökum væri yndislegt ef íslenskur almenningur gæti lagt fé í kosningabaráttu hans.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -