Þriðjudagur 19. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Sjö tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Skráð voru 794 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í apríl og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir apríl 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningar um innbrot.

Það sem af er ári hafa borist um 23 prósent fleiri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 120 tilkynningar um ofbeldisbrot í apríl. Tilkynningar um heimilisofbeldi fjölgaði á milli mánaða og fóru úr 54 tilkynningum í mars í 70 tilkynningar í apríl.

Það sem af er ári hafa borist um 12 prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

- Auglýsing -

Í apríl voru skráð sjö tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi og fjögur tilvik þar sem lögreglumanni var hótað ofbeldi.

Alls bárust 16 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í apríl.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru fimm stórfelld fíkniefnabrot skráð í apríl.

- Auglýsing -

Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða á meðan tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði örlítið.

Í janúar voru skráð 744 umferðarlagabrot – að hraðamyndavélum undanskildum.

Það sem af er ári hafa verið skráð álíka mörg umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu og hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.

Skýrsluna í heild er hægt að nálgast hér.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -