Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Tveimur knattspyrnudómurum hótað lífláti: „Þetta er fyrir neðan allar hellur og með öllu ólíðandi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

KSÍ sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fólk er beðið um að sýna stillingu í kjölfarið á því að tveimur dómurum hefur verið hótað lífláti á undanfarið.

Svo segir í yfirlýsingu KSí að of margir telji sig hafa rétt til þess að tala á slæman hátt um dómara.

„Að vera dómari í fótbolta er mikilvægt starf og knattspyrnuíþróttin getur ekki verið án dómara. Nýliðun í félögunum gengur misvel og það er mikil áskorun fyrir knattspyrnuhreyfinguna að fjölga dómurum. Þessi áskorun er ekki bundin við fótboltann – aðrar íþróttagreinar eru líka að takast á við hana, enda er það því miður þannig að alltof margir einstaklingar telja sig hafa rétt á því að sýna neikvæða hegðun í garð dómara vegna þeirra starfa,“ segir í áðurnefndri yfirlýsingu KSÍ.

Hótanir um líflát hafa borist sambandinu:

„KSÍ vill vekja athygli á því að á síðustu vikum hefur tveimur dómurum sem dæma leiki í mótum meistaraflokka á vegum KSÍ borist líflátshótanir.“

KSÍ segir að hótanir eins og þessar fari langt yfir strikið:

- Auglýsing -

„Þetta er fyrir neðan allar hellur og með öllu ólíðandi, og skiptir engu hvort um er að ræða barnaskap og meint grín, eða hreina og klára tilraun til líkamsárásar. Neikvæð hegðun í garð dómara á fótboltaleikjum – eða ýmsum öðrum íþróttum – er ekki ný af nálinni. Ógnanir og hótanir eru augljóslega langt yfir strikið en þegar ekki er tekið á neikvæðri hegðun og gripið inn í, þá stigmagnast hún. Ábyrgðin er vissulega þess sem hagar sér með þessum hætti, en með samhentu átaki geta allir þátttakendur leiksins unnið bug á þessari meinsemd.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -