Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Okkur langar í …

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

… Tom Dixon-demant inn á bað

Tom Dixon er í miklu uppáhaldi hjá okkur sem hönnuður enda þekktur fyrir frumlega og fallega hönnun. Þetta veggljós heitir Cut surface og minnir á demant og það væri óskandi að svona ljósademantur endi á heimilinu einn daginn.

… Sérsmíðað borð með plássi fyrir allt og alla

Við höfum lengi verið á höttunum eftir borðstofuborði, það rétta höfum við ekki enn fundið. Breitt og langt sniðið eftir okkar höfði – viðarborð með lifandi kanti og ægifögrum borðfótum. Margt fólk í mat, drekkhlaðið borðið af litríkum og bragðgóðum mat og nóg pláss fyrir alla undir kvöldsólinni sem er alveg að setjast í fjarska.

… Ton-armstóla

- Auglýsing -

Ton-stólar eru löngu orðnir að hönnunarklassík og eru þeir meira en velkomnir heim til okkar. Þeir sóma sér vel við borðstofuborð eða einir og sér en falleg lögun, einstakt og einfalt útlit stólsins heillar alltaf. Tímalaust augnakonfekt, sem kemur í nokkrum útfærslum. Fæst í Epal.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -