Freyja Haraldsdóttir segist vera búin að finna leið til að vekja athygli á mikilvægum mannréttindamálum.
Doktorsneminn og baráttukonan fyrir réttindum fatlaðra, Freyja Haraldsdóttir, hefur verið mikið á milli tannanna á fólki síðan sagt var frá nýju ástarsambandi hennar í gær, við háskólanemann David frá Gana. Í gærkvöldi skrifaði Freyja spaugilega en um leið beitta færslu á Facebook þar sem hún sagði frá nýrri leið til að vekja athygli fjölmiðla á baráttumálum sínum, „sem þeir gjarnan hafa lítinn áhuga fyrir.“
Fyrir neðan má lesa færsluna og hina nýju leið til að vekja athygli fjölmiðla:
„Næst þegar ég þarf að ná athygli fjölmiðla um mikilvægt mannréttindamál, sem þeir gjarnan hafa lítinn áhuga fyrir, ætla ég að tala um ástarlíf mitt á samfélagsmiðlum og hoppa svo á æstan vagninn og beina athyglinni að því sem raunverulega skiptir máli og varðar almenning.