Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Stefán gerir stólpagrín að nýju léni Hafrannsóknarstofnunar: „Slökkviliðið yrði þá Logi og eldur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Stefán Pálsson gerir stólpagrín að nýju nafni Hafrannsóknarstofnun.

Hafrannsóknarstofnunin breytti léninu sínu á dögunum í hafogvatn.is og þar á undan sameinaðist Landgræðslan og Skógræktin undir nafninu Land og skógur. Stefán Pálsson sagnfræðingur skrifaði færslu á Facebook þar sem hann gerir stólpagrín að þessari „tísku“.

„Fyrst þegar ég heyrði nýja nafn Hafró, „Haf og vatn“ gantaðist ég með að „Síld og fiskur“ hefði verið upptekið. Eftir því sem frá líður er ég samt farinn að taka þessa nýju tilraun (eða á maður að tala um tísku) í sátt. Ég er amk feginn að við séum ekki komin með enn eina helv*** „stofuna“ eða setrið.

Ættum við að taka þetta lengra og á fleiri sviðum? Slökkviliðið yrði þá Logi og eldur. Ráðuneytið hennar Áslauga Örnu sem enginn man hvað heitir yrði Vit og strit. Fleiri góðar uppástungur?“

Fólk tók vel í færsluna og hafa nú þegar komið nokkrar góðar tillögur að nýjum nöfnum fyrir stofnunum ríkisins.

Hallur nokkur stingur upp á nýju nafni fyrir Útlendingastofnun: „Útlendingastofnun: Inn og út.“

Héðinn stingur upp á nýju nafni fyrir Utanríkisráðuneytinu: „Bjarni Ben gæti farið fyrir ráðuneytinu: Stríð og friður.“

Sævar stingur upp á nýju nafni á Ikea, sem þó er ekki ríkisstofnun, ekki enn að minnsta kosti. „Ég hef lengi gælt við þá sjálfsögðu breytingu að Ikea taki upp nafnið Kjötbollur og húsgögn.“

- Auglýsing -

Illugi Jökulsson gantast með: „Þú veist náttúrlega að ráðuneyti Svandísar heitir Kjöt og fiskur?“

Björn Leví Gunnarsson skaut fast á Katrínu Jakobsdóttur: „Forsætisráðuneytið væri „hitt og þetta.“ Lengra nafn væri „hitt og þetta, samt ekkert þegar allt kemur til alls.“

Þorlaug nokkur betrumbætir tillögu Píratans: „Hitt og þetta – ekkert að frétta.“

- Auglýsing -

Jón Árni kemur svo með leiðréttingu: „Hafró heitir enn Hafrannsóknarstofnun. Svo var bara bætt við Rannsókna- og ráðgjafastofnun hafs og vatna. Og skipt um lén. hafogvatn.is.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -