Vinkonurnar Sunneva Einars og Birta Líf með glænýjan ís í samstarfi við Kjörís.
Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einars og Birta Líf sem standa á bak við Podcastið Teboðið eru nú í samstarfi við Kjörís að kynna vöru sem þær sjálfar hafa þróað og hannað. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu um málið.
Um er að ræða Ostakökuís með hindberja swirl og bleiku súkkulaði en samkvæmt fréttatilkynningunni er allt þetta svo skreytt í anda Teboðsins með smekklegum hvítum hjörtum. Ísinn nefna þær Bestís og er það vel víð hæfi þar sem þær eru sennilega þekktustu „besties“ landsins, eins og það er orðað í fréttatilkynningunni.
Í tilefni af frumsýningu íssins hafa þær blásið til „samfélagsmiðla-stjörnuveilsu“ sem haldin er á háleynilegum stað í hjarta höfuðborgarinnar.
Ísinn verður svo sýndur almenningi á fimmtudagsmorgun í Bónus Smáratorgi og munu fyrstu viðskiptavinirnir fá glaðning frá þeim stöllum. Teboðs-skvísurnar munu svo kynna vöruna á meðan birgðir endast í Bónus Smáratorgi, að því er fram kemur í fréttatilkynningunni en stefnt er að því að ísinn verði kominn í allar verslanir landsins í kringum næstu helgi.
Verkefninu fylgja þær svo eftir með ferðalagi um landið þar sem þær munu í kynna ísinn í hinum ýmsu bæjarfélögum á fagurlega skreyttum Kjörísbíl í anda Teboðsins.
„Þetta er þeirra fyrsta skref í þróun og vöruhönnun en alveg örugglega ekki sú síðasta. Hafið augun á þessum stúlkum á komandi árum því hér eru stórstjörnur að stíga sín fyrstu skref í matvælageiranum. Við hjá Kjörís berum miklar væntingar til þessa samstarfs og erum sannfærð um að líflegur tími sé fram undan.“ Undir fréttatilkynninguna skrifar Elías Þór Þorvarðarson, sölu og markaðsstjóri Kjöríss.