Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Hollráð Lindu P: „Ég byrja alla daga á því að drekka stórt glas af vatni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ég tók saman yfirlit handa þér um mína daglegu heilsurútínu. Hún er hér að neðan þannig að þú getur stælt hana ef þú vilt. Mér finnst skipta sköpum að halda rútínu og taka tíma á hverjum degi til að hlúa að sjálfri mér. Ráðin virka.

Farðu eftir þeim og uppskerðu árangur!

Mynd/Linda Pétursdóttir

Grunnurinn í öllu hjá mér eru Grunnreglurnar, sem ég kenni.

  • 2 lítrar af vatni
  • 7-9 klst. svefn
  • Planið
  • Hungurkvarðinn
  • Húðumhirða og hreyfing
  • Þú átt það skilið
  • Vilt þú taka næstu bestu ákvörðun fyrir þig? Hættu að segja sjálfri þér að þú getir ekki grennst eða bætt útlitið, það er ekki rétt.

 

Vatn og svefn

Líkaminn þinn getur ekki brennt fitu þegar hann er uppþornaður og svefnvana.Það mun hægja á brennslunni og kalla á kolvetni og sykur. Þegar þú drekkur ekki nóg vatn og sefur of lítið eykst löngun þín í mat, oft óhollan. Líkaminn er í raun ekki svangur enheldur að hann þurfi eitthvað til að komast af. Þess vegna eru hvíld og vatsndrykkja mikilvæg.

- Auglýsing -

Ég byrja alla daga á því að drekka stórt glas af vatni.

Ég bæti út í það 2 mtsk. af ólífuolíu (lífræn, gæðaolía) og safa úr hálfri sítrónu.

Ef þú ætlar að gera eina breytingu, bættu þá ívatnsdrykkjuna. 2 lítra á dag takk fyrir!

- Auglýsing -

Planið

Ég skipulegg matarplanið mitt fyrirfram hvern dag. Það gerir allar matarákvarðanir einfaldar. Ég vel að borða holla og næringaríka fæðu. Þeir 3 fæðuflokkar sem ég fókusera á eru; Grænmeti, prótein og holl fita. Ég fæ mér súperdrykk úr 28 daga Heilsuáskoruninniminninánast alla daga ársins en þeir innihalda ofurfæðu sem gerir manni mjög gott og hefurandöldrunaráhrif. Ég borða mikið af berjum og hollri fitu og tek daglega bætiefni. Planið er mín eigin áætlun, mitt eigið matarplan og inn á það set ég fæðu sem gerir mér gott líkamlega.Þú vilt plana máltíðir, matartegundir, fjölda og magn máltíða.

Hungurkvarðinn

Þetta tól er algjörlega magnað og með því lærir maður að hlusta á hungurmerki líkamans ogsmá saman að borða minna magn eða það sem líkaminn þarf á að halda. Ekki allt hitt! Þúlærir muninn á líkamlegu og tilfinningalegu hungri. Þú borðar þegar líkaminn er raunverulega svangur og hættir þegar hann er orðinn mettur. Ég sem dæmi, fæ mér ekki aftur á diskinn. Grunnreglurnar 4 eru þáttur númer eitt í Podcastinu Lífið með Lindu Pé. Ef þú vilt fræðast nánar um þetta, hlustaðu þá endilega á það ókeypis efni.

Húðumhirða og hreyfing

Varðandi útlit og ferska og heilbrigða húð þá hreinsa ég alltaf húðina kvölds og morgna ogber á mig góð krem og olíur. Húðin er jú stærsta líffærið. Ég hef farið í góðar húðmeðferðir ígegnum árin og hlúi vel að húðinni og hef alltaf gert. Flesta daga hugleiði ég, fer í sána, þurrbursta húðina og ber kókosolíu á líkamann. Daglega geng ég um 10 þúsund skref úti ínáttúrunni með hundunum mínum.

Þú átt það skilið

En þetta er langt því frá fullkomið hjá mér, ég er mennsk og nenni ekki alltaf að gera það semer mér fyrir bestu til langtíma litið. Ég tek ekki alltaf bestu ákvörðunina fyrir sjálfa mig, en þá er bara að taka næstu bestu ákvörðun í kjölfarið. Maður hefur nefnilega alltaf það val. Alltþetta hér að ofan er það sem ég legg áherslu á í minni daglegu rútínu. Ég nýt þess að hlúa að sjálfri mér og mér finnst ég eiga það skilið. Þú átt skilið að gera slíkt hið sama fyrir þig.

Vilt þú taka næstu bestu ákvörðun fyrir þig?

Ef þú vilt taka næstu bestu ákvörðun fyrir sjálfa þig vil ég hvetja þig til að koma yfirí Prógrammið Lífið með Lindu Pé. Þú lærir nýjar aðferðir til að bæta heilsuna, ekki sístandlega. Og þú losnar við aukakílóin, án þess að vera í megrunarkúr.

Ég get hjálpað þér. Linda Pé.

Heimasíða: www.lindape.com

Instagram: @lindape

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -