Fimmtudagur 25. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Icelandair segir upp 2.000 manns

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Icelandair Group tilkynnti í Kauphöll nú fyrir stundu um yfirgripsmiklar aðgerðir hjá félaginu sem taka gildi um mánaðamótin. Aðgerðirnar fela í sér uppsagnir starfsfólks og breytingar á skipulagi til að bregðast við þeirri stöðu sem félagið stendur frammi fyrir vegna útbreiðslu COVID-19.

Í tilkynningu frá félaginu segir að mikil óvissa ríki um nánustu framtíð og að aðgerðirnar séu liður í að búa félagið undir órætt tímabil þar sem starfsemi þess verður í lágmarki.

„Á sama tíma verður lögð áhersla á að halda uppi grunnstarfsemi á öllum sviðum til þess að tryggja þann sveigjanleika sem þarf til að félagið geti brugðist hratt við um leið og markaðir opnast á ný,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að félagið hafi á undanförnum vikum leitað allra leiða til að draga úr útstreymi fjármagns, svo sem með því að endursemja við birgja og fjármögnunaraðila. Stærsti kostnaðarliður félagsins er eftir sem áður launakostnaður og er því nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að draga úr þeim kostnaði.

Icelandair Group mun grípa til eftirfarandi aðgerða á næstu dögum:

-Rúmlega tvö þúsund starfsmönnum verður sagt upp störfum. Uppsagnirnar ná til allra hópa innan félagsins, en þær hafa þó mest áhrif á störf beintengd framleiðslu, svo sem áhafnir, viðhaldsþjónustu og starfsfólk flug- og farþegaþjónustu.

- Auglýsing -

-Þeir sem starfa áfram hjá félaginu eru langflestir í skertu starfshlutfalli og aðrir í fullu starfi með skert laun.

Erfiðar en nauðsynlegar aðgerðir

Til viðbótar við þessar aðgerðir hafa breytingar verið gerðar á skipulagi félagsins er fram kemur í tilkynningunni. „Starfseminni verður framvegis skipt í sjö svið í stað átta áður. Þau eru: Sölu- og þjónustusvið, fraktflutningasvið (Icelandair Cargo), flugvélaleiga og ráðgjöf (Loftleiðir Icelandic), flugrekstrarsvið, fjármálasvið, mannauðssvið og nýtt svið, viðskipta- og stafræn þróun. Tómas Ingason, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni verður framkvæmdastjóri nýs sviðs. Ívar S. Kristinsson, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri flugflota og leiðakerfis, verður ekki hluti af framkvæmdastjórn en mun áfram stýra flotamálum félagsins. Í kjölfar þessara breytinga verða átta í framkvæmdastjórn að meðtöldum forstjóra í stað níu áður,“ segir í tilkynningunni.

- Auglýsing -

Einnig hafa talsverðar skipulagsbreytingar verið gerðar innan sviða og deilda fyrirtækisins og við það fækkar stjórnendum í efstu lögum um 19.

„Þetta eru mjög erfiðar aðgerðir en því miður nauðsynlegar. Það er gríðarleg óvissa framundan og við þurfum að undirbúa okkur undir takmarkaða starfsemi hjá félaginu um óákveðinn tíma. Við vonumst til að aðstæður í heiminum fari að batna sem fyrst og að við getum boðið sem stærstum hluta starfsmanna sem um ræðir vinnu aftur. Markmiðið með þessum aðgerðum er jafnframt að tryggja grunnstarfsemi félagsins og halda nauðsynlegum sveigjanleika til að geta brugðist hratt við þegar eftirspurn tekur við sér á ný,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -